Liðið sem Sir Alex tefldi fram í kvöld var mikið breytt frá Real Madrid leiknum en engu að síðar voru það þrír bestu leikmennirnir úr þeim leik sem héldu sætum sínum og fengu enga hvíld, Welbeck, De Gea og Jones. Það var þó ekkert að sjá að liðið væri eitthvað varalið, United pressaði frá upphafi. Það varði þó aðeins fimm mínútur eða svo og síðan varð leikurinn nokkuð jafn og ef eitthvað var voru Reading menn meira með boltann. Nemanja þurfti meira að segja að sýna gamla takta í vörninni til að stoppa Reading.
Liðið gegn Reading
Liðið er komið
De Gea
Jones Smalling Vidic Büttner
Valencia Cleverley Anderson Young
Welbeck Hernandez
Varamenn: Lindegaard, Ferdinand, Giggs, Carrick, Nani, Van Persie, Kagawa
Jones tekur bakvörðinn eins og eftir 30 mínútur í deildarleiknum. Sem sé, bestu mennirnir frá síðasta leik halda sætinu. Nani fær ekki byrjunarsæti.
Reading annað kvöld
Úr einum konunglegum leiknum í annan. Real Madrid ber sinn konunglega titil stoltir í nafninu, veittan af Alfonso XIII árið 1920, en Reading láta sér nægja að bera „The Royals“ sem viðurnefni, og þá fyrir þá stórmerkilegu — eða ekki — staðreynd að Windsor kastali Englandsdrottnara er í héraðinu sem fær því að bera titilinn „The Royal County of Berkshire“. Þeim hefur þannig tekist að gleyma hinum gamla viðurnefni „Kexkarlarnir“, því þótt vissulega hafi Reading séð öllu heimsveldinu fyrir kexi hér áður fyrr þá er það víst ekki lengur merkilegt. Nú ku Reading vera meira yfir í tæknina, þannig að kannske munu „Forritararnir“ mæta á Old Trafford í framtíðinni.
Real Madrid 1:1 Manchester United
Hver hefði ekki þegið þessa niðurstöðu fyrirfram? Eins og var alveg vitað fyrir leikinn var stillt upp til svakalegrar baráttu í leiknum. Jones var ekki beinlinis settur til höfuðs Ronaldo en vissi þó alltaf… eða næstum því alltaf hvar hann var. Welbeck, Rooney og Kagawa voru síðan hlaupageiturnar.
Leikurinn var hasar frá upphafi og besti maður United í leiknum, David de Gea, kom strax á fimmtu mínútu með frábæra fingurgómavörslu frá Coentrão, í stöng og út. Gríðarlega mikilvæg varsla og hefði breytt miklu ef sá hefði farið inn. Sjá GIF mynd.
Liðið gegn Real
Liðið er komið og lítur svona út:
De Gea
Rafael Evans Ferdinand Evra
Welbeck Carrick Jones Rooney
Kagawa
Van Persie
Varamenn: Lindegaard, Valencia, Giggs, Hernández, Smalling, Cleverley
Ja hér. Welbeck og Rooney á köntunum? Eða bara alls staðar? Bara einn varnarmaður á bekk!
Þegar ég bjóst við baráttuliði var ég ekki alveg að hugsa svona. Þetta er algerlega magnað!
Liðið hjá Real er eins og spáð var nema Di María er heill og kemur inn fyrir Higuain og Benzema fer í senterinn. Varane er inni, enda spilað vel að undanförnu og Pepe ekki 100%