Munið þið eftir Ander Herrera? Ég var næstum búinn að gleyma honum, enda gerði hann lítið hjá Athletic Bilbao í vetur til að minna á sig. Hann var þó fastamaður í liðinu.. En núna fullyrðir spænska blaðið Marca að hann sé búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við United. Þetta verði tilkynnt opinberlega í dag. United á að hafa greitt upp klásúluna góðu upp á 36m. Upphaflega á þetta sér rætur í frétt Cadena Ser útvarpsstöðvarinnar.
Antonio Valencia skrifar undir nýjan samning
Þau sem vildu einhvers konar Football Manager úthreinsun, 10 út, 10 inn verða fyrir vonbrigðum. En það var svo sem vitað, þó þurfi að endurnýja liðið þá verður það frekar að taka menn inn frekar en selja. Antonio Valencia er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning þannig að hann fær tækifæri til að rífa sig uppúr þeirri lægð sem hann hefur verið í undanfarin tvö tímabil. Honum til varnar var hann í erfiðum meiðslum þar á undan og í fyrra missti hann besta vin sinn úr ekvadorska landsliðinu, Chucho Benítes.
Sjóðheitt morgunslúður
Þar kom að því, nýtt og ferskt og þokkalega áreiðanlegt slúður!
Og þá er það að Thomas Vermaelen hafi samþykkt samning við United og nú eigi bara eftir að ganga frá kaupverði við Arsenal. Vermaelen á ár eftir af samningi og því ætti Arsenal ekki að geta heimtað mikið.
Það er ekki hægt að segja að þetta séu flottustu fréttirnar. Vermaelen er búinn að vera fimm ár hjá Arsenal, stóð sig vel í fyrstu en hefur verið nokkuð meiddur undanfarið. Hann var valinn fyrirliði liðsins eftir að Van Persie fór, en hefur ekki átt fast sæti í liðinu í vetur.
Gærkvöldið
Þegar markmenn voru ekki verndaðir
HM er byrjað og í tilefni þess að í gær var (réttilega að mati þess sem hér skrifar) dæmt brot á Ivica Olić fyrir brot á Júlio César skulum við rifja upp úrslitaleikina í ensku bikarkeppninni 1957 og 1958.
Árið 1957 voru United Englandsmeistarar og ætluðu sér að að verða fyrsta liðið á 20. öldinni til að vinna tvöfalt. En Peter McParland, sóknarmaður Aston Villa hafði aðrar hugmyndir og gerði út um þann draum með skemmtilegu broti á Ray Wood strax á 7. mínútu (eða á 0:43 í myndskeiðinu)