• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Opin umræða

Opin umræða Slúður

Thiago á leiðinni?

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. júní, 2013 | 5 ummæli

Er Thiago á leiðinni?

Fjarri því að vera fast í hendi, en orðrómurinn er sterkur um að málið sé komið það langt að farið sé að ræða launamál. Graham Hunter, gamalreyndur og virtu enskur blaðamaður á Spáni heldur því fram og undir það tekur Daily Telegraph í dag. De Gea hefur greinilega verið að vinna í þessu fyrir okkar hönd enda skrifaði hann á boltann sem Thiago fékk eftir þrennuna gegn Ítalíu „Sjáumst í Manchester“ eins og fram hefur komið. Eins og fram hefur komið er Thiago með lausnarklásúlu í samningnum sínum sem sendur í 18 milljónum evra eða um 15,4 milljónum punda og því hans að ákveða en ekki Barcelona. Upphæðin er alla jafna 90 milljónir evra, en lækkar í 18 milljónir þar sem Thiago fékki ekki að leika í meira en þrjátíu mínútur í 60% leikja Barcelona. Hann lék reyndar í 60% leikja Barcelona í fyrra og náði vel yfir 30 mínútum af meðaltali, en hefði þurft að ná þrjátíu mínútum í öllum 36 leikjunum sem hann lék, en ekki bara 21 einum þeirra. Framundan er HM á næsta ári og Thiago hlýtur að vera mikið í mun að vera fastamaður í byrjunarliði til að sýna að hann eigi erindi í spænska landsliðið (og ekkert leiðindatuð með að benda á að ef hann kemst ekki í Barcelona byrjunarliðið þá komist hann varla í spænska liðið. Hann gæti heyrt það og hugsað sig um betur…) Lesa meira

Efnisorð: Thiago Alcántara 5
Opin umræða Slúður

Föstudagsskammturinn – nýr búningur

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. júní, 2013 | 12 ummæli

Í fyrradag kynnti United aðalbúninginn fyrir næsta tímabil, og pistlahöfundur fagnar að borðdúkurinn sé horfinn.

Eins og venjulega fylgir PR stöff með allt um það hvernig nýji búningurinn höfði til sögu Manchesterborgar, meira að segja eiga tölurnar fjórar einhvern veginn að vísa til þess líka. Hvernig veit ég ekki. Annars er þetta bara nokkuð smekklegt, rauði liturinn réttur, buxurnar hvítar og sokkarnir svartir, án þess að missa sig í einhverju bulli. Hægt verður að bretta upp kragann og leika Eric… ef maður man eftir að afhneppa tölunni aftan á kraganum. Treyjan er komin í búðir úti og ætti því að vera á leiðinni hingað heim. Lesa meira

Efnisorð: Guille Varela 12
Opin umræða Pistlar Slúður Stjórinn

Hræringar í þjálfaraliðinu

Björn Friðgeir skrifaði þann 28. maí, 2013 | 6 ummæli

Eftir fréttir um daginn að Mickey Phelan og Eric Steel hefði verið sagt upp sem aðstoðar­framkvæmda­stjóra og markmanns­þjálfara, virðist sem breytingar í þjálfaraliðinu séu að komast á hreint.

Nú virðist ljóst að René Meulensteen, sem var aðalliðsþjálfari, hafi einungis boðist minni staða í nýju þjálfarateymi og hann ákveðið að taka henni ekki heldur reyna fyrir sér á nýjum miðum. Lesa meira

Efnisorð: Chris Woods David Moyes Phil Neville Steve Round 6
Fjármál Opin umræða Slúður

Laun leikmanna?

Sigurjón skrifaði þann 13. nóvember, 2012 | 4 ummæli

Fótbolti.net birti frétt á vefnum sínum í dag um lista sem hugsanlega inniheldur launatölur leikmanna Manchester United. Hann lítur út svona:

  • Wayne Rooney – £180,000
  • Robin van Persie – £180,000
  • Rio Ferdinand – £110,000
  • Nemanja Vidic – £90,000
  • Ashley Young – £90,000
  • Patrice Evra – £75,000
  • Ryan Giggs – £70,000
  • Javier Hernandez – £60,000
  • Shinji Kagawa – £60,000
  • Antonio Valencia – £60,000
  • Michael Carrick – £55,000
  • David De Gea – £50,000
  • Danny Welbeck – £50,000
  • Darren Fletcher – £50,000
  • Jonny Evans – £45,000
  • Andres Lindegaard – £45,000
  • Luis Nani – £45,000
  • Chris Smalling – £40,000
  • Phil Jones – £40,000
  • Rafael da Silva – £40,000
  • Paul Scholes – £30,000
  • Alexander Buttner – £25,000
  • Angelo Henriquez – £20,000
  • Tom Cleverley – £20,000
  • Federico Macheda – £6,000
  • Nick Powell – £5,000

Hvað finnst ykkur um þetta, teljið þið þetta líklegan lista? Eru menn að fá borgað það sem þeir eiga skilið?

Annars komu líka þær fréttir í dag að á morgun (miðvikudag) verður það tilkynnt að skuldir Manchester United séu nú komnar undir 400 milljónir punda og mun það vera í fyrsta skiptið sem það gerist síðan Glazer fjölskyldan keypti klúbbinn í maí 2005. Þetta er svolítið eins og að fagna 10-0 tapi í dag eftir 20-0 tapið í gær, en hey, við tökum öllum fjárhagslegum framförum með fegins hendi, ekki satt? Lesa meira

4
Opin umræða

Opin umræða

Magnús Þór skrifaði þann 8. október, 2012 | 18 ummæli

Nú þegar er komið landsleikjahlé er ekki mikið af fréttum.

Robin van Persie fær ekki refsingu fyrir meint olnbogaskot í leiknum í gær.

En þetta er opin umræða, ræðið það sem þið viljið.

18
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress