• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Yngri liðin

Yngri liðin

Hvað er í gangi í yngri liðum félagsins? 2016:2

Runólfur Trausti skrifaði þann 7. september, 2016 | 3 ummæli

Síðan síðasti pistill um yngri liðin var birtur hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Leikmanna hreyfingar

Fyrst er að nefna þá leikmenn sem hafa yfirgefið U23 ára leikmannahóp félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokaði þann 1. september. Þeir eru eftirfarandi:

  • Adnan Januzaj til Sunderland (lán)
  • Andreas Pereira til Granada á Spáni (lán)
  • James Wilson til Derby County (lán)
  • Cameron Borthwick-Jackson til Wolves (lán)
  • Joel Pereira til Belenense (lán)
  • Dean Henderson til Grimsby Town (lán)
  • Tyler Blackett til Reading (seldur)
  • Will Keane til Hull City (seldur)
  • James Weir til Hull City (seldur)

Við hér á Rauðu djöflunum munum svo fylgjast með hvernig þeim leikmönnum sem eru á láni farnast á nýjum vettvangi. Januzaj er til að mynda nú þegar búinn að spila fleiri leiki fyrir Sunderland en hann gerði fyrir Borussia Dortmund en hann var á láni þar í fyrra. Lesa meira

Efnisorð: Axel Tuanzebe Kieran McKenna Nicky Butt Regan Poole 3
Enska úrvalsdeildin Leikmenn Pistlar Yngri liðin

Kjúklingarnir frá Manchester

Runólfur Trausti skrifaði þann 3. mars, 2016 | 5 ummæli

Eftir að hafa lent í gífurlegum meiðslum á síðasta tímabili tók Louis Van Gaal þá ákvörðun að það væri betra að skera hópinn niður. Þrátt fyrir að liðið væri að fara í Meistaradeildina og reikna mátti með að hörmungin gegn Mk Dons myndi ekki endurtaka sig. Því kom það mörgum á óvart að Van Gaal ætlaði sér að minnka hópinn, sérstaklega eftir meiðslavitleysuna sem átti sér stað í fyrra. Lesa meira

5
Pistlar Yngri liðin

Horft fram á veginn

Runólfur Trausti skrifaði þann 22. desember, 2015 | 5 ummæli

Undanfarin ár hefur borið nokkuð á því að yngri flokka starf Manchester United sé ekki jafn gott og það var áður. Sögurnar segja að ljósblái nágranni félagsins standi mun betur að vígi heldur en Djöflarnir okkar. Var hlaupið yfir þetta í grein eftir undirritaðan sem birtist í september síðastliðnum, má lesa hana hér.

Nú eru komnir 10 mánuðir síðan Brian McClair hætti sem yfirmaður yngri liða Manchester United. Umrædd staða svipar eflaust til yfirmanns yngri flokka hér heima en þar sem þetta er Manchester United en ekki Knattspyrnufélag Reykjavíkur þá er staðan eflaust veigameiri en við áttum okkur á. Á þessum 10 mánuðum hefur enginn verið ráðinn í starfið. Mér skilst að Nicky Butt hafi hlaupið í skarðið og verið að sinna hluta af starfinu en betur má ef duga skal. Þrátt fyrir árangur U21 liðið undanfarið þá hefur árangur U18 liðsins verið hreint út sagt hörmulegur þrátt fyrir marga efnilega drengi. Málið er hreinlega að það virðast alltof margir drengjanna vera að spila upp fyrir sinn aldursflokk og það skilur hvern árganginn á fætur öðrum eftir með fáa, og ef til vill ekki nægilega góða, leikmenn. Sem dæmi má nefna að í U19 ára Meistaradeildar kepninni byrjaði United einn leik með tvo 16 ára gutta inn á. Lesa meira

5
Enska úrvalsdeildin Pistlar Yngri liðin

Unglingastarf United: Allt í molum?

Runólfur Trausti skrifaði þann 24. september, 2015 | 5 ummæli

Fyrir nokkrum vikum síðan komust úrslit U14 ára liðs Manchester United í fréttirnar. Ástæðan var sú að liðið tapaði 0-9 fyrir Manchester City. Sláandi tölur vægast sagt. Kepptust fréttamiðlar við að skrifa fréttir um að yngri flokka starf Manchester United væri í molum og þar fram eftir götunum. Yngri flokka starfið hefur mátt muna sinn fífil fegurri en þessi úrslit gefa þó ekki alveg rétta mynd af stöðunni. Lesa meira

Efnisorð: James Wilson 5
Yngri liðin

Markasúpa

Björn Friðgeir skrifaði þann 25. nóvember, 2014 | 3 ummæli

Úr því að við erum ekki upptekin við að horfa á Meistaradeildina er ágætt að hræra hér smá markasúpu.

U21 liðið spilaði við Blackburn í kvöld og stillti upp sterku liði  Lindegaard, Janko, Thorpe, J. Evans, Vermijl, Herrera, Pearson, Harrop, Pereira, W. Keane, Januzaj.

Skemmst er frá að segja að United vann 5-0 með mörkum frá Will Keane, Herrera, Pereira og tveimur frá Joe Rothwell og hér koma mörkin: Lesa meira

Efnisorð: Ander Herrera Andreas Pereira Joe Rothwell Nani Will Keane 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress