Ef við fáum færri brot i dag í heildina en í seinni leiknum í gær, þá er það fínt. Ekki var Cuadrado vinur okkar að slá í gegn en í dag fær Marouane Fellaini tækifæri til að hækka söluverðið sitt, við óskum honum góðs gengis við það. Svo væri óskandi að Wilmots myndi eftir því að hann er með einn besta ungling heims á bekknum hjá sér
Angel di María fær tækifæri til að sannfæra þá sem dæma hann af síðasta leik. Hann á klárlega heima á Old Trafford.
Seinni leikurinn er svo United ‘B’ gegn Kosta Ríka. Eitthvað hefur þagnað slúðrið um að Van Gaal vilji taka með sér Hollendinga en við getum samt skemmt okkur við að horfa á liðið hans.