Hinn sívinsæli aðstoðarvarayfirstjórnarformaður Ed Woodward settist niður með MUTV í dag og svaraði nokkrum laufléttum spurningum. Þetta er áhugavert viðtal þar sem Woody kallinn fer um víðan völl. M.a. sagði hann þetta um kaup og sölur á leikmönnum í þessum glugga:
There is no fixed budget, financially we are extremely strong, funds are available, Louis is the boss, Louis is assessing what’s been going on, we’ve been in dialogue for some time about targets, so there’s a lot of work going on behind the scenes, so watch this space.
Gott að vita að menn séu á fullu í því að styrkja hópinn. Viðtalið í heild sinni má svo skoða hér fyrir neðan:
Fyrsti æfingarleikur félagins fer svo fram aðfaranótt fimmtudags klukkan 03:00 að íslenskum tíma. Spilað er við Los Angeles Galaxy á Rose Bowl vellinum í Los Angeleles.