• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

West Bromwich Albion

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:2 WBA

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. september, 2013 | 26 ummæli

Þetta var hrikalega lélegt. Það er ekki boðlegt að lið eins og West Bromwich Albion komi á Old Trafford og spili mikið betur en heimaliðið og fari verðskuldað heim með stigin þrjú í pokahorninu. David Moyes stillti upp eftirfarandi liði:

De Gea

Jones Ferdinand Evans Büttner

Carrick Anderson

Nani Rooney Kagawa

Chicharito

Bekkur: Evra, Welbeck, van Persie, Valencia, Fellaini, Amos & Januzaj. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Leikskýrslur West Bromwich Albion 26
Enska úrvalsdeildin

WBA kemur á Old Trafford

Tryggvi Páll skrifaði þann 27. september, 2013 | 6 ummæli

Menn eru væntanlega að koma niður af jörðinni eftir leikinn gegn Liverpool í fyrradag og farnir að einbeita sér að krafti að næsta verkefni. West Bromwich Albion kemur í heimsókn á Old Trafford klukkan 14:00 á morgun.

Andstæðingarnir

Steve Clarke tryggði sér og liði sínu sæti í öllum fótbolta pup-quizum heimsins næstu áratugina þegar liðið gerði 5-5 jafntefli við Manchester United í síðasta leik síðasta tímabilsins og í síðasta leik Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson. Það stig tryggði þeim 8.sæti sem verður að teljast verulega góður árangur fyrir lið á borð við WBA. Lesa meira

Efnisorð: Nani Sir Alex Ferguson Upphitun West Bromwich Albion 6
Enska úrvalsdeildin

WBA 5:5 Manchester United

ellioman skrifaði þann 19. maí, 2013 | 5 ummæli

Þetta var svakalegur kveðjuleikur sem Sir Alex Ferguson og Paul Scholes fengu í dag á The Hawthorns. Það gerist ekki oft að maður sér United skora fimm mörk án þess að sigra fótboltaleik, hvað þá að fá á sig fimm mörk í einum og sama leiknum. Það var hinsvegar raunin í dag. United og West Bromwich gerðu jafntefli í tíu marka leik. TÍU! Það hefði nú óneitanlega verið mun skemmtilegra að sjá liðið kveðja Ferguson með flottum sigri en svona er þetta. Titilinn er kominn í hús og menn greinilega farnir í sumarfrí. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur West Bromwich Albion 5
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn West Brom

ellioman skrifaði þann 19. maí, 2013 | 3 ummæli

Svona leit fyrsta byrjunarlið Ferguson hjá Manchester United út:

Turner

Duxbury Moran McGrath Albiston

Hogg Blackmore Moses Barnes

Davenport Stapleton

Og svona verður það síðasta:

Lindegaard

Valencia Jones Evans Buttner

Anderson Cleverley Carrick Kagawa

van Persie Chicharito

Bekkur: De Gea, Evra, Ferdinand, Giggs, Vidic, Scholes, Januzaj

Enginn Rooney í dag og ástæðan á víst að vera:


https://twitter.com/SkySportsNews/status/336054796719112192
Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling West Bromwich Albion 3
Enska úrvalsdeildin

United heimsækir West Bromwich Albion

ellioman skrifaði þann 18. maí, 2013 | 4 ummæli

Þá er komið að því, síðasti leikur tímabilsins er runninn upp og sumarfríið blasir við. Það klikkar ekki að á hverju ári þegar að þessum tímapunkti kemur verður maður leiður yfir fótboltaleysi sumarsins. Svo þegar fólk segir manni að slaka á og að það hljóti nú að vera hægt að bíða rólegur í þrjá mánuði, hugsa ég til spaka mannsins þegar sagt var við hann: „Við erum með dóttir þína. Hún er örugg en hvort henni verði haldið þannig ræðst af þér. Þú ætlar að vera samvinnuþýður og fá hana til baka, rétt?“ og hann svaraði svo snilldarlega: „Rangt!“. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 4
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress