• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Meistaradeild Evrópu

Í heimsókn í München

Björn Friðgeir skrifaði þann 8. apríl, 2014 | 2 ummæli

Bayern München - Manchester UnitedÞegar drátturinn í Meistaradeildinni fór fram voru það tvenns konar viðbrögð sem kalla mátti ánægjuviðbrögð. Annars vegar ánægja með að David Moyes fengi mótherja sem neyddu hann og liðið til að sýna hvað í þeim bjó. Hins vegar þeirra stuðningsmanna sem sáu fram á að fá að heimsækja stórskemmtilega borg í útleiknum, bergja á eðal guðaveigum og almennt hafa engar áhyggjur af væntri rassskellingu.

En öllum á óvart kom United á óvart. Stífur varnarleikur með blöndu af nokkuð beittum sóknum skilaði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum og á morgun eru allt opið. Nema eitt.

United verður að skora mark.

Liðin höfðust ólíkt að um helgina. United hvíldi nokkra leikmenn og vann Newcastle United sannfærandi 4-0. Bayern München hvíldi nær allt liðið og tapaði 1-0 fyrir Augsburg, fyrsti tapleikur liðsins í 54 leikjum.

Það má alveg búast við að sigur United hafi ágæt áhrif á United, en að sama skapi er ólíklegt að tapið um helgina sitji um of í Bayern.

Þrennan sem stóð sig svo vel a móti Newcastle mun ekki spila á móti Bayern. Juan Mata er í Evrópuböndum, og ólíklegt er að Shinji Kagawa verði í byrjunarliðinu. Mögulegt er að Moyes treysti Adnan Januzaj en þeim mun líklegra er að Antonio Valencia verði fyrir valinu, ekki síst vegna varnarhæfileika.

Því að það er alveg á tæru að það verður lagt upp með sömu leikaðferð og í síðustu viku. Liðið verður mjög líkt

De Gea

Jones Ferdinand Vidic Evra

Valencia Carrick Fletcher Cleverley Welbeck

Rooney

Einu spurningarnar að ráði er hvort Evra taki aftur bakvörðinn þrátt fyrir ágæta frammistöðu Büttner í fyrri leiknum. Fellaini er meiddur og fór ekki með og ólíklegt er að Giggs fái aftur tækifæri og þá eru það Cleverley sem var ekki einu sinni á bekknum á móti Newcastle og Fletcher, sem lék allan þann leik, sem spila. Moyes er búinn að lýsa yfir að Rooney fái sprautu í meidda tána og spili.

Eitt enn: Þrátt fyrir að hafa slitið liðbönd í úlnlið um síðustu helgi þá er Ashley Young með liðinu í München. Það kemur á óvart. En hann er ekki að fara að byrja.

Það er auðveldara að stilla upp Bayern liðinu. Schweinsteiger og Javí Martínez eru í banni, Thiago meiddur sem fyrr og Shaqiri meiddist móti Augsburg. Dante er kominn til baka úr banni, og hann ásamt Lahm, Müller, Götze, Boateng, Robben, Ribery og Alaba var hvíldur. Þá er þetta svona:

Neuer

Rafinha Dante Boateng Alaba

Lahm

Robben Götze Kroos Ribéry

Mandžukić

Skýt á Mandžukić þarna frekar en Müller en annars kemur þetta í ljós.

Það er alveg ljóst að ef minnsti möguleiki á að vera á að komast áfram þarf þetta að spilast eins og á þriðjudaginn síðasta. Svakaleg barátta, hreyfanleiki á Rooney og Welbeck og rest í því að stoppa.

Við getum ekki skilið við upphitun fyrir leik í München án þess að leiða hugann að sjötta febrúar 1958. Gerum það með tísti Rio Ferdinand núna rétt áðan:

Bumped into some of our #ManchesterUnited fans at the Munich Memorial site. #Respect pic.twitter.com/IMvks3BP09

— Rio Ferdinand (@rioferdy5) April 8, 2014

Efnisorð: Bayern Munchen Upphitun 2

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Bósi says

    8. apríl, 2014 at 23:08

    Horfdi a thetta fyrir fyrri leikinn, og mun gera thad aftur a morgun. Serstaklega skemmtilegt er ad fylgjast med domaranum reyna draga leikmenn Bayern a faetur eftir seinna markid til ad klara leikinn.
    enjoy! Glory Glory.

    sidustu 3 min i 99 leiknum
    https://www.youtube.com/watch?v=LC_f9CB1Pmg

    0
  2. 2

    Andri Theodorsson says

    9. apríl, 2014 at 11:57

    Hef trú á jafntefli í kvöld, 1-1. Framlengingin fer því miður 1-0, Robben með markið á 119 mínutu. Vona að ég hafi rangt fyrir mér þó. Ef þetta fer í vítaspyrnur þá vinnum við! (Svo lengi að Smalling stígi ekki á punktinn)

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress