• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Meistaradeild Evrópu

Dregið í forkeppni Meistaradeildarinnar á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. ágúst, 2015 | 2 ummæli

Á morgun kl. 10 verður dregið í forkeppni Meistaradeildarinnar. Þar sem ekkert má vera tilviljanakennt lengur í knattspyrnu þá getur United ekki mætt nema fimm liðum af þeim 19 sem eru með United í drættinum.

Við kíkjum aðeins þá þessa mótherja

Club Brugge

Urðu efstir í deildarkeppninni í Belgíu í fyrra, en þar fara efstu sex í úrslitadeild um meistaratitilinn og Brugge varð í öðru sæti á eftir Genk. Kepptu í Evrópudeildinni í fyrra, unnu sinn riðil móti Torino, HJK og FC Kaupmannahöfn, unnu síðan AaB og Beşiktaş áður en þeir töpuðu fyrir Dnipro í fjórðungsúrslitum. Komu inn í síðustu umferð Meistaradeildar undanrása og slógu út Panathinaikos 4-2 samanlagt.

View image | gettyimages.com

Eiður Smári er farinn frá Club Brugge og því get ég sagt með öryggi að ég kannast ekki við einn einasta leikmann hjá þeim.

CSKA Moskva

Líkt og Brugge varð CSKA í öðru sæti í sinni deild í fyrra, 7 stigum á eftir Zenit. Rússneska deildin er byrjuð aftur og CSKA er búið að vinna alla þrjá leiki sína og eru komnir í form. Þeir unnu Sparta Prag 5-4 í þriðju umferð undanrásanna og eru því komnir í forkeppnina.

View image | gettyimages.com

Leikmenn eru helstir markvörðurinn Igor Akinfeev, sem var nú ekki svo sjaldan orðaður við United hér í eina tíð, Svíinn Pontus Wernbloom og síðast en ekki síst fyrrum United leikmaðurinn Zoran Tošić.

S.S. Lazio

Lazio gekk vel í fyrra. Liðið varð í þriðja sæti í deildinni, stigi á eftir erkifjendunum í AS Roma en átján á eftir Juventus. Það skilaði liðinu beint inn í þessa forkeppni, líkt og United. Lazio tapaði svo fyrir Juventus í úrslitum bikarsins

Ítalska deildin er ekki byrjuð, fyrsti leikur Lazio á tímabilinu verður meistarakeppnin gegn Juventus nú um helgina,. Fyrsti deildarleikur er svo 23. ágúst, milli leikjanna í forkeppninni.

Af leikmönnum skal fyrstan telja Ravel Morrison sem okkur er vel kunnur. En lið Lazio er annars fullt af þekktum nöfnum og hlýtur að vera það lið sem við viljum síst lenda á móti.

View image | gettyimages.com

AS Monaco

Eins og Lazio varð Monaco í þriðja sæti í sinni deild í fyrra. PSG vann með yfirburðum og Lyon varð í öðru sæti.  Þeim gekk hins vegar vel í Meistaradeildinni, unnu sinn riðil, móti Leverkusen, Zenit og Benfica. Slógu síðan Arsenal út í 16 liða úrslitum en töpuðu fyrir Juventus í næstu umferð.

View image | gettyimages.com

Monaco vann Young Boys frá Bern í undanrásunum, 7-1 samanlagt og fór nokkuð létt með. Leikmenn eru helstir Jérémy Toulalan, markvörðurinn Danjiel Subašić, og svo er Stephen El-Shaarawy kominn að láni frá Milan. Svo eru Ricardo Carvalho og João Moutinho þarna líka. (Dimitar Berbatov hvarf á braut í sumar þegar samningi hans lauk) Þokkalega sterkt lið en United á að vera sterkara . Franska deildin byrjar um helgina þannig þeir eru á svipuðum stað og United hvað það varðar.

Rapid Vín

Rapid varð í öðru sæti austurrísku deildarinnar, 6 stigum á eftir Red Bull Salzburg í vor. Evrópukeppnisþáttöku þeirra lauk í ágúst, þeir töpuðu fyrir HJK í forkeppni Evrópudeildarinnar.

View image | gettyimages.com

Nú sló Rapid hins vegar út Ajax í þriðju umferð undanrásanna, 5-4 samanlagt og eru búnir að vinna tvo fyrstu leikina í deildinni og eru því komnir í góða æfingu. Leikmenn eru að langstærstum hluta austurrískir og enginn sem ég kannast við. Líklega lakasta liðið af þessum fimm.

Við vonumst því eftir að sleppa við Lazio, helst ekki fá Monaco, en hin liðin þrjú hljóta að flokkast undir skyldusigra.

2

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Hannes says

    6. ágúst, 2015 at 19:57

    Best væri að fá Rapid Wien eða C.Brugge. En United á samt að klára öll þessi lið.

    0
  2. 2

    Bjarni Ellertsson says

    7. ágúst, 2015 at 10:17

    C. Brugge var það heillin, þetta ætti að vera komið, set kröfu á það.
    GGMU

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress