• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 Wolverhampton Wanderers

Björn Friðgeir skrifaði þann 13. maí, 2023 | 5 ummæli

Liðið sem Erik ten Hag stillti upp til að hirða fyrstu þrjú stigin af níu sem þarf til að tryggja meistaradeildarsæti leit svona út

1
De Gea
23
Shaw
2
Lindelöf
19
Varane
29
Wan-Bissaka
14
Eriksen
18
Casemiro
25
Sancho
8
Fernandez
21
Antony
9
Martial

Varamenn: Butland, Maguire, Malacia, Dalot, Fred, Weghorst, Pellistri, Elanga, Garnacho

Lð Wolves

Bentley
Toti
Kilman
Dawson
Semedo
Neto
Neves
Lemina
Nunes
Costa
Cunha

United var með boltann fyrsta hálftímann nær látlaust, en skapaði ekkert nema hvað Antony hefði getað gefið á Anthony í þokkalegu færi en skaut sjálfur, rétt framhjá. Annars sátu Úlfarnir djúpt og vörðust vel.

Það var svo aftur Antony sem var í frábæru færi á 30. mínútu. Sancho gaf fyrir og Antony var skilinn eftir á markteig. Ef boltinn hefði lent á hægri fætinum á honum hefði maður skilið að hann gæti ekki skorað en það var skalli hans sem fór hátt yfir. Þarna átti hann algerlega að gera betur!

En 90 sekúndum síðar kom markið. Loksins náði United upp hraðri sókn á fámenna Wolves vörn, boltinn upp á Antony sem lék in í teig og í þetta sinn gaf hann þvert þegar Bentley kom út í hann, Anthony Martial var einn og óvaldaður og markið auðvelt. 1-0.

Embed from Getty Images

Síðasta sókn hálfleiksins var svakalegur sprettur Antony upp allan kantinn, upp að teig og þvert, sending á Martial sem lagði fyrir sig boltann og skaut lausu skoti beint á Bentley, hefði betur gefið á Sancho þar.

Ef fyrri hálfleikur var í eigu United með helst til of fáum tækifærum var sá seinni meira streð. Wolves voru frískari og United agalega bitlausir. Antony var frískastur, reyndi í það minnsta skot. Bruno reyndi sitt besta til að búa til eitthvað en það var lítið að frétta af öðrum. Það var síðan því miður Jadon Sancho sem fékk prýðilegt færi í teignum, en það var ekki nógu öflugt, Bentley gat sýnt frábæra takta og varið í horn en hefði í raun ekki átt að eiga séns.

Ten Hag reyndi að loka þessu með að skipta Varane og Eriksen útaf fyrir Maguire og Fred, en gaf þó smá von að skipta um leið Alejandro Garnacho inná fyrir Sancho.

Strax á eftir var það bara Casemiro sem átti langskot og það þurfti frábæra vörslu frá Bentley til að koma því í horn. Bentley var algerlega maður leiksins hjá Wolves því hann vaarði enn á ný skot í horn á 91. mí´nutu, það var Antony enn á ný sem skaut.

Næstu þrjár mínútur fóru fram að mestu uppi við vítateig United, Wolves pressaði á fullu og skýrsluhöfundur beið bara eftir þessu klassíska lokamínútu marki. En það kom hinu megin, United vann boltann, Bruno tók á rás og á hárréttu augnabliki kom sendingin langt fram, Garnacho hljóp í boltann, komst inn í teig og náði að hrista af sér varnarmanninn og ná skotinu, framhjá Bentley og í stöng og inn. 2-0 sigur í höfn. Þrjú stig komin. Sex stig þarf.

Embed from Getty Images

5

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Helgi P says

    13. maí, 2023 at 14:10

    Eriksen er ekki búinn að vera það góður að hann eigi að starta hvern einasta leik og Anthony það að fara læra gefa boltan

    3
  2. 2

    Egill says

    13. maí, 2023 at 16:57

    Þetta hefði getað verið svo miklu þægilegri sigur ef menn gætu klárað færin sín, og ef Antony hefði heila.
    En góður sigur engu að síður og verðskuldaður, hvíldin hefur ekki skemmt fyrir.
    Það jákvæðasta var þó innkoma Fred, sem var geggjaður, og Garnacho!! Hausinn á Rashford virðist vera farinn enn og aftur og þá er nauðsynlegt að vera með aðra ógn í Garnacho.
    Heilt yfir er ég bara mjög sáttur eftir erfið úrslit undanfarið.

    3
  3. 3

    Einar says

    13. maí, 2023 at 20:48

    Léttir 3 stig😁

    0
  4. 4

    Helgi P says

    20. maí, 2023 at 14:08

    Eru allir búnir að missa áhugan á þessari síðu

    2
  5. 5

    Kristb says

    20. maí, 2023 at 20:05

    Bournemouth vs Man Utd,:
    Nauðsynlegur sigur. 9 fingur plús á 4 sætið komið.
    De Gea með amk 2 vörslur sem björguðu stigunum.
    Nokkrir tapaðir boltar nálægt miðju sem næstum kostuðu ekki ásættanlegt. Og slatti af sendingum beint á mótherja.

    Sáttur við stigin.
    Heilt yfir stjórnuðu þeir leiknum lengst af.
    Frábært slútt hjá Casemiro, bara geggjað.
    Shaw og De Gea bestir í dag fannst mér. Saknaði Rashford í þessum leik. Vonandi nær hann síðustu leikjunum.
    Weghorst og Martial fannst mér týndir í leiknum.
    Skyldu þeir ná að landa Kane?
    Vonandi.
    Spurs er ekki að ná í Evrópusæti eftir tapið í dag , að líkindum Brighton sem þarf bara 3 stig í viðbót og á 3 leiki inni.
    Þökk sé Sigri Nott Forest á Arsenal urðu Man City meistarar í dag.
    Verðskuldað.
    Aðeins Man Utd og Inter geta komið í veg fyrir þrennuna hjá þeim.

    2

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Bob um United 1 : 2 City
  • Arni um United 1 : 2 City
  • Helgi P um United 1 : 2 City
  • Egill um United 1 : 2 City
  • Egill um United 1 : 2 City

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress