• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tryggvi Páll

Ritstjóraálit

Hvað gerðist eiginlega um helgina?

Tryggvi Páll skrifaði þann 8. október, 2018 | 5 ummæli

Nýafstaðin helgi er líklega einhver sú skrýtnasta sem ég man eftir sem stuðningsmaður Manchester United. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik í leiknum gegn Newcastle var eins og jarðarför stjóratíð José Mourinho hjá United væri hafin. Það hefði ekki komið manni á óvart ef hann hefði verið látinn fjúka í hálfleik.

Það hefði reyndar verið við hæfi, tilkynningin um jarðarförina barst nefnilega kvöldið áður þegar David McDonnell blaðamaður íþróttadeildar Mirror henti í það sem hefði verið skúbb aldarinnar. Jose Mourinho verður rekinn sama hvernig leikurinn gegn Newcastle endar í lauslegri þýðingu minni á fyrirsögn greinarinnar. Lesa meira

Efnisorð: Ed Woodward Jose Mourinho 5
Meistaradeild Evrópu

CSKA Moskva 1:4 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 27. september, 2017 | 19 ummæli

Þetta verður varla mikið þægilega á útivelli í Meistaradeildinni en það var í kvöld. Afskaplega öruggur sigur United í höfn og efsta sæti A-riðilis er í góðum höndum. United stillti upp í þriggja manna vörn.

Byrjunarlið United

De Gea
Lindelöf
Smalling
Bailly
Blind
Matic
Mkhitaryan
Herrera
Young
Martial
Lukaku

Bekkur: Romero, Darmian, Tuanzebe, Mata, McTominay, Lingard & Rashford.

Það eru smá meiðsli í hópnum þannig að United þurfti að breyta svolítið til. Enginn Fellaini, Carrick né auðvitað Pogba og Jones fékk verðskuldaða hvíld. Lindelöf og Smalling héldu áfram að fá tækifærin í bikar/Evrópu og Lukaku og Martial voru saman frammi. Lesa meira

19
Meistaradeild Evrópu

CSKA tekur á móti United

Tryggvi Páll skrifaði þann 26. september, 2017 | 3 ummæli

Leikirnir koma nú á færibandi, alveg nákvæmlega eins og við viljum hafa það. Ekki síst þegar það gengur svona vel. Okkar menn eru á leið til Moskvu þar sem CSKA er andstæðingurinn.

Það er búist við töluverðum látum í Moskvu í dag og á morgun þar sem erkifjendur okkar í Liverpool eiga einnig leik í borginni. Þeir keppa gegn Spartak Moskvu í kvöld. Lögregla býst við töluverðum látum en það er reiknað með að um 2000 stuðningsmenn beggja liða muni ferðast frá Englandi. Snilldarhugmynd hjá UEFA að láta þessi lið spila í sömu borginni í sömu leikviku. Lesa meira

Efnisorð: CSKA 3
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 3:0 FC Basel

Tryggvi Páll skrifaði þann 12. september, 2017 | 4 ummæli

Það hellirigndi í Manchester í kvöld þegar okkar menn tóku á móti svissnesku meisturum Basel í fyrsta Meistaradeildarleiknum á Old Trafford í að verða tvö ár.

Mourinho kom nokkuð á óvart með byrjunarliðinu í kvöld. Fyrir leik var vitað að Lindelöf og Smalling myndu koma inn fyrir Jones og Bailly sem voru í banni. Öllu meira kom á óvart að Ashley Young var mættur í byrjunarliðið í stað Valencia. Varnarlínan var alveg breytt frá leiknum gegn Stoke um helgina því Blind kom einnig inn fyrir Darmian. Lesa meira

Efnisorð: Basel 4
Meistaradeild Evrópu

Byrjunarliðið gegn Basel

Tryggvi Páll skrifaði þann 12. september, 2017 | 4 ummæli

Byrjunarliðið gegn Basel í fyrsta leik riðlakeppni Meistaradeildarinnar þetta árið er komið. Ýmsar breytingar frá leiknum gegn Stoke um helgina. Bailly og Jones í banni þannig að Lindelöf og Smalling koma inn. Athygli vekur að Valencia fær hvíld, Ashley Young kemur inn fyrir hann auk þess sem að Blind tekur sæti Darmian. Það er alveg ný varnarlína sem mætir til leiks.

Að öðru leyti koma Martial og Mata inn fyrir Rashford og Herrera. Þetta lítur svona út, sex breytingar allt í allt. Pogba er með bandið! Lesa meira

4
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Interim pages omitted …
  • Page 49
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress