Það eru sex leikir eftir af tímabilinu hjá okkar mönnum og á morgun fer fer einn af þeim leikjum fram. Liðið skellir sér í heimsókn til London til að spila við West Ham. Menn geta talað eins illa um Sam Allardyce og hans leikstíl og vilja en það er alveg morgunljóst að hans aðferðir skila liðum alltaf um miðja deild. Engin fallbarátta og engin hætta á þeim vonbrigðum að missa af titlum. Menn vita hvað menn fá. Það þarf því ekki að koma á óvart að West Ham situr í 12. sæti og ætti að vera öruggt um að falla ekki nema neðstu liðin framkvæmi einhverskonar kraftaverk.
Enska úrvalsdeildin
Stoke City 0:2 Manchester United
United byrjaði með sókndjarft lið og var augljóst að það átti að skora mörk. Enda algjörlega nauðsynlegt að klára þennan leik örugglega og ná aftur 15 stiga forystu (í bili að minnsta kosti.)
Ekki tók nema rétt rúmar 3 mínútur að skora, Michael Carrick gerði það uppúr hornspyrnu, ekki fallegasta markið sem við höfum skorað en það telur. Þeir hafa nú skorað flest mörkin í deildinni úr hornum strákarnir okkar, eitthvað sem virtist ómögulegt þegar hornamennirnar okkar voru Giggs og Nani. Stoke fór aðeins að verða meira áberandi þegar leið á hálfleikinn án þess þó að fá einhver færi en hefðu alveg mátt fá gul eftir tvö brot á United í sömu sókninni. Staðan í hálfleik 0-1 fyrir Man Utd.11 – Today's just the 11th time in his #mufc career (76th appearance) David De Gea has lined up behind Vidic and Ferdinand.
— Nick Coppack (@nickcoppack) April 14, 2013
Carrick and Rooney have completed the most passes so far today (33), and Rooney has completed the most final third passes (6).
Liðið gegn Stoke
De Gea
Jones Ferdinand Vidic Evra
Valencia Carrick Rooney Kagawa
van Persie Hernandez
Bekkur: Lindegaard, Evans, Giggs, Smalling, Welbeck, Cleverley, Büttner
Stoke: Begovic; Cameron, Shawcross, Huth, Wilkinson; Shotton, Whelan, Nzonzi, Adam, Walters, Jones
Michael Owen er á bekknum.
Heimsókn til Stoke á Britannia
Eftir vonbrigðin á mánudaginn hefur forysta okkar minnkað niður í 12 stig. Til þess að trygga titilinn þá vantar okkur 10 stig í viðbót að því gefnu að City vinni rest.
Það er ekki beint hægt að sjá að það hafi verið meistarabragur á United síðan í byrjun marsmánaðar. Allir stóru leikirnar hafa tapast undanfarið og munar um það að Robin van Persie virðist vera fyrirmunað að skora en hann hefur ekki skorað í um 700 mínútur. Wayne Rooney hefur skorað nokkur mikilvæg mörk og sýnir það hversu nauðsynlegt það er að hafa nokkra góða framherja. Þetta mark Rooney gegn Norwich var valið mark marsmánaðar hjá ManUtd.com. Ashley Young er meiddur og verður frá í 2 vikur.
Manchester United 1:2 Manchester City
Jæja, þetta var ömurlegt. City nær að eyðileggja hamingjudaginn fyrir okkur og sigrar United með tveimur mörkum gegn einu. James Milner (’51) og Sergio Aguero (’79) með mörkin fyrir City á meðan Kompany skoraði sjálfmark eftir skalla frá Phil Jones (’59).
Það leiðinlegasta sem ég les er þegar reynt er að kenna hinum og þessum leikmanni þegar United upplifir tapleiki og neita ég að detta í þann gír. En það er ekki hægt að neita því að maður er afskaplega svekktur með bæði mörkin sem United fengu á sig í kvöld. Fyrra markið kom eftir mislukkaða hælsendingu hjá Giggs, Barry nær boltanum og brunar fram í sókn og endar boltinn hjá Milner sem nær góðu skoti og endar boltinn í netinu. Svo er það seinna markið þegar Yaya Toure gefur boltann á Aguero sem fær frelsi til að hlaupa framhjá allri vörninni og skora þetta óþolandi flotta mark fyrir City og tryggja þeim þrjú stigin. Sérsaklega súrt þar sem liðið var búið að halda hreinu í yfir 600 mínútur. Virðist vera smá trend á þessu tímabili að fá á okkur svona mörk þar sem leikmenn hlaupa í gegnum vörnina: Bale, Vertonghen og núna Aguero.