• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Evrópudeildin

Evrópudeildin

Mótherjar Manchester United í Evrópudeildinni

Magnús Þór skrifaði þann 26. ágúst, 2016 | 7 ummæli

Manchester United mun leika í A-riðli Evrópudeildarinnar þetta tímabilið. Í þessari færslu ætla ég að renna létt yfir hin lið riðilsins.

Fenerbahçe S.K.

Þetta er líklega eitt frægasta lið Tyrklands. Liðið hefur verið viðloðandi Evrópukeppir nánast síðan ég man eftir mér. Liðið hefur þó ekki verið sérstaklega sigursælt í Evrópu en besti árangur þeirra er undanúrslit Evrópudeildarinnar 2012-2013 en þar datt liðið út gegn liði Benfica frá Lissabon. Einu sinni tókst liðinu að komast í 8-liða úrslit Meistradeildar Evrópu en þar þurfti liðið að lúta í lægra haldi gegn Chelsea tímabilið 2007-2008 en við munum flest hverjir unnu keppnina það árið. Lesa meira

7
Evrópudeildin

*Uppfært* Dregið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á morgun

Halldór Marteins skrifaði þann 25. ágúst, 2016 | 2 ummæli

Athugið, færslan hefur verið uppfærð, nú má sjá endanlega styrkleikaflokkaröðun hérna neðst.

Embed from Getty Images

Á morgun verður dregið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. 48 lið verða í pottinum og verða þau dregin í 12 riðla. Drátturinn fer fram í Mónakó og hefst klukkan 11:00 að íslenskum tíma. Við munum að sjálfsögðu fylgjast vel með drættinum og færa fréttir af niðurstöðunni. Lesa meira

2
Evrópudeildin

Manchester United 1:1 Liverpool

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. mars, 2016 | 30 ummæli

Ander Herrera var eitthvað lítillega meiddur á æfingu og var því hvíldur í þessum leik. Talað var um að Blind myndi líka missa af leiknum en svo var ekki og liðið leit því svona út

Fyrirfram var auðvitað búist við að Mata væri í 10 stöðunni en Lingard byrjaði þar og Mata úti á kanti.

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
30
Varela
27
Fellaini
16
Carrick
9
Martial
35
Lingard
8
Mata
39
Rashford

Varamenn: Romero, Darmian, Valencia, Williams, Schneiderlin, Schweinsteiger, Memphis

Lið Liverpool var að mestu óbreytt frá fyrri leik, James Milner kom inn í liðið fyrir Moreno: Mignolet; Clyne, Lovren, Sakho, Milner; Can, Henderson, Lallana; Coutinho, Firmino, Sturridge. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Liverpool 30
Evrópudeildin Sagan

Snýr United taflinu við gegn Liverpool?

Tryggvi Páll skrifaði þann 16. mars, 2016 | 11 ummæli

„We are in three different competitions, and at this stage of the season a lot of other teams and managers cannot say that. We still have the chance to win something.“ #

Þetta sagði Louis van Gaal á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn West Ham, aðeins degi eftir tapið gegn Liverpool í fyrri viðureign þessara lið í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Að hans mati er þriggja ára planið sem sett var í gang með ráðningu hans í fullri sveiflu enda liðið í bullandi séns í þremur keppnum. Lesa meira

Efnisorð: Barcelona Bryan Robson Liverpool Olympiakos Robin van Persie Ryan Giggs Upphitun 11
Evrópudeildin

Liverpool 2:0 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 10. mars, 2016 | 31 ummæli

Liðið Manchester United leit svona út. Herrera var eitthvað lítillega meiddur og er settur á bekkinn.

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
30
Varela
27
Fellaini
28
Schneiderlin
7
Memphis
8
Mata
39
Rashford
9
Martial

Varamenn Romero, Darmian, Riley, Carrick, Schweinsteiger, Weir, Herrera

Lið Liverpool:

Mignolet
Moreno
Sakho
Lovren
Clyne
Lallana
Henderson
Can
Coutinho
Sturridge
Firmino

Dómarinn í leiknum, Spánverjinn Carlos Velasco Carballo var búinn að gefa 74 gul spjöld og 6 rauð síðustu 12 leikjum og það tók hann innan við tvær mínútur að veifa spjaldi í þessum leik. Henderson fór yfir boltann og í legginn á Schneiderlin og fékk umsvifalaust spjald. Liverpool byrjuðu líka eins og við var búist og settu pressu á United frá upphafi.  Það varði ekki of lengi og United tókst bara ágætlega að vinna sig út úr því og náðu að halda boltanum. En pressan kom afturog á 19. mínútu  braut Memphis klaufalega á Firmino, hélt honum og sparkaði í hann aftan frá. De Gea fór í rétta átt en náði ekki nema gómnum í skot Sturridge og staðan var 1-0. Liverpool tók yfir eftir þetta og Coutinho átti að koma þeim í 2-0 en fyrir opnu marki setti hann fótinn utanfótar í boltann og gaf De Gea tækifæri til að verja frábærlega Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Liverpool 31
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 21
  • Page 22
  • Page 23
  • Page 24
  • Page 25
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress