• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Leikskýrsla

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:0 Southampton

Magnús Þór skrifaði þann 30. desember, 2017 | 16 ummæli

Markalaust jafntefli var niðurstaðan í dag. Þessi leikur var skelfilega leikinn af United. Southampton voru bara skítsæmulegum framherja frá því að vinna þennan leik. Henrikh Mkhitaryan var algjörlega hörmulegur í dag og virtist alltaf taka röngu ákvörðunina. Hann gerði það svo oft að það hlýtur að hafa verið meðvitað. Það markverðasta sem gerðist hjá Manchester United í öllum leiknum var þegar bera þurfti Romelu Lukaku af velli eftir hann virtist rotast eftir samstuð við leikmann Southampton og missir amk af næstu 2 leikjum. Hin sorglega staðreynd að David de Gea sé langbesti leikmaður United á vellinum trekk í trekk er ekkert nema áhyggjuefni. Klúbbur af þessari stærðargráðu á ekki að þurfa að stóla á markvörðinn sinn einfaldlega til að forðast niðurlægjandi úrslit. Vörnin var frekar virkaði ekkert alltof stabíl og ef Shane Long væri betri leikmaður þá hefði hann refsað í dag í staðinn fyrir að láta De Gea sjá alltaf við sér. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrsla 16
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 AFC Bournemouth

Björn Friðgeir skrifaði þann 13. desember, 2017 | 9 ummæli

Scott McTominay fékk tækifæri í byrjunarliðinu í stað Ander Herrera sem satt best að segja ekki verið mjög góður í vetur og Luke Shaw byrjaði fyrsta deildarleik sinn í sjö mánuði og 13 daga. Að auki komu Phil Jones og Juan Mata inn í liðið

1
De Gea
23
Shaw
4
Jones
12
Smalling
25
Valencia
31
Matić
39
McTominay
11
Martial
14
Lingard
8
Mata
9
Lukaku

Varamenn: Romero, Blind, Lindelöf, Young, Ander Herrera, Ibrahimovic, Rashford

Bournemouth leit svona út, enginn Jermain Defoe í byrjunarliðinu. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrsla Luke Shaw Phil Jones Romelu Lukaku 9
Enska úrvalsdeildin

Arsenal 1:3 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. desember, 2017 | 13 ummæli

Þetta var skemmtilegasti leikur United í mörg ár! Og það var helst varnarvinnu beggja liða að þakka, og frammistöðu David de Gea sem varði 14 skot í leiknum, sem er það mesta sem markvörður hefur varið í einum leik frá því farið var að halda utan um þá tölfræði í úrvalsdeildinni.

Liðið var óbreytt frá Watford leiknum, Matić var heill en enginn Ibrahimović á bekknum Lesa meira

Efnisorð: David de Gea Jesse Lingard Leikskýrsla Paul Pogba 13
Enska úrvalsdeildin

Chelsea 1:0 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 5. nóvember, 2017 | 21 ummæli

Bæði lið stilltu upp svipuðum leikaðferðum eins og við var búist, með þremur miðvörðum. United var óbreytt frá Tottenham leiknum og Fellaini var mættur á bekkinn

1
De Gea
12
Smalling
4
Jones
3
Bailly
18
Young
31
Matić
21
Herrera
25
Valencia
22
Mkhitaryan
19
Rashford
9
Lukaku

Hjá Chelsea var N’golo Kante heill og átti eftir að muna um hann. Það var líka til þess að Fàbregas spilaði framar.

13
Courtois
24
Cahill
27
Christensen
28
Azpilicueta
3
M. Alonso
14
Bakayoko
7
Kante
21
Zappacosta
10
Hazard
4
Fàbregas
9
Morata

Leikurinn byrjaði samt mun hressar en það gaf til kynna. N’golo Kante átti fyrsta skotið, beint á De Gea og rétt á eftir Rashford reyndi fyrirgjöf utan af kanti sem reyndist svo skot sem Courtois tók á línunni. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrsla 21
Enska úrvalsdeildin

Liverpool 0:0 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 14. október, 2017 | 20 ummæli

Meiðsli settu svip sinn á liðið, vitað var að Pogba, Fellaini og Carrick væru meiddir og Phil Jones tæpur. Þegar liðið var svo birt kom í ljós að Eric Bailly hafði meiðst í landsleikjahléinu og að Marcus Rashford hefði líka eitthvað hnjaskast. Fyrir leikinn voru vangaveltur um að þetta væri 3-4-2-1 en Mourinho valdi að setja Ashley Young í hægri kant og nota Darmian í vinstri bakvarðarstöðuna Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrsla 20
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 9
  • Page 10
  • Page 11
  • Page 12
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress