• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Manchester City

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:2 Manchester City

ellioman skrifaði þann 8. apríl, 2013 | 22 ummæli

Jæja, þetta var ömurlegt. City nær að eyðileggja hamingjudaginn fyrir okkur og sigrar United með tveimur mörkum gegn einu. James Milner (’51) og Sergio Aguero (’79) með mörkin fyrir City á meðan Kompany skoraði sjálfmark eftir skalla frá Phil Jones (’59).

Það leiðinlegasta sem ég les er þegar reynt er að kenna hinum og þessum leikmanni þegar United upplifir tapleiki og neita ég að detta í þann gír. En það er ekki hægt að neita því að maður er afskaplega svekktur með bæði mörkin sem United fengu á sig í kvöld. Fyrra markið kom eftir mislukkaða hælsendingu hjá Giggs, Barry nær boltanum og brunar fram í sókn og endar boltinn hjá Milner sem nær góðu skoti og endar boltinn í netinu. Svo er það seinna markið þegar Yaya Toure gefur boltann á Aguero sem fær frelsi til að hlaupa framhjá allri vörninni og skora þetta óþolandi flotta mark fyrir City og tryggja þeim þrjú stigin. Sérsaklega súrt þar sem liðið var búið að halda hreinu í yfir 600 mínútur. Virðist vera smá trend á þessu tímabili að fá á okkur svona mörk þar sem leikmenn hlaupa í gegnum vörnina: Bale, Vertonghen og núna Aguero. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City 22
Enska úrvalsdeildin

Liðið gegn City

ellioman skrifaði þann 8. apríl, 2013 | 1 ummæli

Byrjunarliðin voru að detta í hús. Svona líta þau út:

De Gea

Rafael Jones Ferdinand Evra

Welbeck Giggs Carrick Young

Rooney Van Persie

Varamenn: Lindegaard, Valencia, Hernandez, Nani, Cleverley, Kagawa, Buttner

City með sterkt lið eins og vanalega:
Byrjunarlið: Hart, Zabaleta, Kompany, Nastasic, Clichy, Toure, Barry, Milner, Silva, Nasri, Tevez.
Varamenn: Pantilimon, Lescott, Dzeko, Kolarov, Javi Garcia, Aguero, Toure Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Manchester City 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester City á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 7. apríl, 2013 | 10 ummæli

Komið þið sæl og blessuð og verið öll hjartanlega velkomin í þessa splúnkunýju útgáfu af „Spáum í spilin“, þar sem tvö lið eru tekin fyrir og greind í frumeindir. Eins og alltaf þá er enginn er óhultur fyrir miskunnarlausri gagnrýni í okkar þætti og þrátt fyrir þráláta orðróma um hið gagnstæða þá tek ég ekki við neinum mútuboðum! Ég heiti Elvar, kalla mig „ellioman“ á veraldarvefnum og verð með ykkur næstu 5-10 mínúturnar eða þann tíma sem tekur ykkur að lesa öll orðin þar til þið sjáið „Skrifa ummæli“. Sem ég mæli eindregið með að þið gerið! Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Upphitun 10
Enska úrvalsdeildin

City 2:3 UNITED

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. desember, 2012 | 20 ummæli

Þvílíkur leikur, þvílík dramatík.

Ég vil byrja á því að þakka Arsene Wenger kærlega fyrir að selja okkur Robin van Persie. Þetta eru kaupin sem munu skilja að liðin þegar stigin eru talin í vor.

Að leiknum,

Það er óhætt að segja að United-menn hafi verið nokkuð svartsýnir fyrir þennan leik. Útreiðin á Old Trafford og ömurleikinn á Etihad á síðasta tímabili hafa líklega haft eitthvað með það að gera. Þegar blaðamennirnir birtu liðin á Twitter var ljóst að Sir Alex hafði komið öllum að óvörum: Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City 20
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn City

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. desember, 2012 | 5 ummæli

Byrjunarliðin hafa verið tilkynnt

De Gea

Rafael Evans Ferdinand Evra

Carrick Cleverley

Valencia Rooney Young

RvP

Bekkur: Johnstone, Jones, Giggs, Smalling, Hernandez, Welbeck, Scholes

Óvænt að Cleverley og Valenica komi inn, menn héldu að þeir væru frá vegna meiðsla. Gamli refurinn að koma á óvart, annað er eftir bókinni.

Byrjunarliðið hjá City er eftirfarandi:

Hart

Zabaleta Kompany Nastasic Clichy Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Manchester City 5
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress