• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Manchester City

Enska úrvalsdeildin

United mætir City á Etihad-vellinum á sunnudag

Tryggvi Páll skrifaði þann 1. nóvember, 2014 | 3 ummæli

Jæja. Chelsea á sunnudaginn, City á morgun. Þetta er alvöru.

Eftir að hafa gjörsamlega átt þessa viðureign þegar City var ekki að spila í 2. deild hafa tímarnir aðeins breyst. Eins og allir vita hafa æðstu ráðamenn í Abu Dhabi dælt olíupeningum sínum eins og enginn væri morgundagurinn í þetta City-lið og afraksturinn er þokkalegur. Tvær titlar og einhverjir aðrir bikarar. City hefur líka átt þessa viðureign undanfarin ár. Þeir gjörsamlega snýttu  Manchester United liðinu hans David Moyes í báðum leikjum í fyrra. Unnu okkur eftirminnilega 6-1 um árið. Þeir eru auðvitað ríkjandi meistarar og við erum ennþá að ná áttum eftir að Sir Alex fór af svæðinu. Alexander Kolarov var greinilega með þetta í huga þegar hann lét eftirfarandi flakka í viðtali um daginn: Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:3 Manchester City

Tryggvi Páll skrifaði þann 25. mars, 2014 | 24 ummæli

Svona voru byrjunarliðin:

De Gea

Rafael Rio Jones Evra

Mata Carrick Cleverley Fellaini Welbeck

Rooney

Bekkur: Lindegaard, Büttner, Fletcher, Kagawa, Young, Valencia, Hernandez

Hart

Zabaleta Kompany Demichelis Clichy

Fernardinho Touré

Navas Silva Nasri

Dzeko

Leikurinn byrjaði eins illa og hægt er að ímynda sér. Leikurinn var ekki mínútu gamall þegar Manchester City var komið yfir. Vörnin hjá United var sofandi, Nasri spólaði sig í gegn, skaut í stöng og frákastið endaði hjá Edin Dzeko sem lagði boltann í autt markið. 0-1 fyrir City. Hræðileg byrjun. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City 24
Enska úrvalsdeildin

Manchester-slagurinn

Tryggvi Páll skrifaði þann 24. mars, 2014 | 11 ummæli

Framundan er slagurinn um Manchester-borg. Á morgun mætast sigurvegarar siðustu tveggja tímabila Úrvalsdeildarinnar á Old Trafford. Það er auðvitað frekar óvenjulegt að svona leikur sé settur á þriðjudag en upphaflega átti hann að fara fram 1. mars en finna þurfti nýja dagsetningu eftir að City komst í úrslitaleik deildarbikarsins. Undir venjulegum kringumstæðum væri þetta lykilleikur í titilbaráttunni en það er ekkert venjulegt við þetta tímabil fyrir okkur sem halda með Manchester United. Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Skýringarmyndir Upphitun 11
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 4:1 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 22. september, 2013 | 20 ummæli

Þar kom það.

Leikurinn þar sem stuðningsmenn annarra liða kætast meira en fjögurra ára barn á jólunum, leikurinn þegar ljóst er að Manchester United er búið að vera, hætt að vinna, getur ekki neitt, og mun án efa falla.

Eða þannig.

Þetta er ekki í fyrsta skipti á síðustu árum sem Manchester United gengur frá leik gegn Manchester City með skít og skömm, og líklega ekki það síðasta. David Moyes er þannig að feta í fótspor Sir Alex en ekki að skapa ný. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City 20
Enska úrvalsdeildin

Etihad heimsóttur á sunnudag

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. september, 2013 | 3 ummæli

September er rétt hálfnaður og eftir helgina verður United búið að spila þrjá af stærstu leikjum vetrarins. Chelsea og Liverpool gengu ekki alveg sem skyldi en á morgun förum við á Etihad og ræðst þá stemmingin í borginni á mánudag.

Öll vitum við að hér uppfrá skiptir Liverpool leikurinn okkur meira máli svona upp á að mæta í vinnuna eftir helgi, og jafnvel þó það sé nú alltaf mál í Manchester eru menn þar líka skiptir í skoðunum. Wayne Rooney finnst Liverpool leikurinn stærri og það var líka raunin þegar Ron Atkinson var við stjórnvölinn. Þá var öldin aðeins önnur eins og BBC rifjar upp. Frekari upprifjun á góðum borgarslögum fyrri ára má finna í þessari grein Guardian frá 2008. Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Upphitun 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress