• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Manchester City

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:2 Manchester City

Björn Friðgeir skrifaði þann 10. september, 2016 | 20 ummæli

José Mourinho gerði tvær breytingar á liði United fyrir leikinn í dag. Juan Mata og Anthony Martial fóru á bekkinn og inná kantana komu Henrikh Mkhitaryan og Jesse Lingard.

1
De Gea
23
Shaw
3
Bailly
17
Blind
25
Valencia
6
Pogba
27
Fellaini
14
Lingard
10
Rooney
22
Mkhitaryan
9
Ibrahimović

Varamenn: Romero, Smalling, Herrera, Schneiderlin, Martial, Rashford

Fyrstu mínútur leiksins voru City sterkari, héldu boltanum vel á miðjunni og sóttu á. Bailly gaf aukaspyrnu af því taginu sem við erum farin að venjast þrátt fyrir stuttan feril hans hjá United, en City nýtti hana ekki. Bæði Mkhitaryan og Lingard voru óöruggir á boltanum og misstu hann hvað eftir annað, nú eða létu bara taka hann af sér. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City 20
Enska úrvalsdeildin

Grannaslagur eða stjóraslagur? Manchester City í heimsókn.

Björn Friðgeir skrifaði þann 9. september, 2016 | 6 ummæli

Loksins, loksins, loksins, loksins.

Það er grannaslagur á morgun, og ólíkt síðustu þremur árum þá er það grannaslagur sem skiptir öllu máli!

Fyrir sex mánuðum síðan fór United í heimsókn til City og Tryggvi eyddi upphituninni í að ræða mál Louis van Gaal. Í sjálfum leiknum var Marcus Rashford enn og aftur stjarnan, skoraði 250. mark United í grannaslag og tryggði United 1-0 sigur og kom liðinu upp í… sjötta sætið. City sat þá hins vegar í fjórða sæti. Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Pep Guardiola Upphitun 6
Enska úrvalsdeildin

United verður að vinna í Norwich

Magnús Þór skrifaði þann 6. maí, 2016 | 3 ummæli

Eftir jafnteflið gegn Leicester City var stuðningsfólk Manchester United orðið ansi svartsýnt á að liðið næði í Meistaradeildarsæti. Sá leikur eins og margir í vetur bauð upp á svarta og hvíta frammistöðu. Fínni frammistöðu í fyrri hálfleiknum var fylgt á eftir með frekar dapurri. Maroune „Elbows McGee“ Fellaini tókst að láta dæma sig í bann í kjölfarið á nokkrum ágætum frammistöðum í undanförnum leikjum. En eftir mikla hjálp frá Southampton sem gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Manchester City þá er þetta allt í einu orðinn möguleiki aftur. Með sigri gegn Norwich þá myndi United vera 4 stigum á eftir Arsenal og 1 stigi á eftir City en þau eiga innbyrðisleik á sunnudaginn. Manchester City er orðið mjög tæpt á sætinu og mega alls ekki við að tapa gegn Arsenal og varla gera jafntefli því þá mun Evrópadeildarsætið blasa við. United gæti verið komið í bísna góða stöðu eftir helgina svo framarlega að liðið skili sínu. Svo væri mjög sætt að hefna fyrir tapið gegn Norwich á Old Trafford. Lesa meira

Efnisorð: Arsenal David de Gea Leicester City Manchester City Marcus Rashford Marouane Fellaini Meistaradeild Norwich City Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 0:1 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 20. mars, 2016 | 16 ummæli

Liðið var frekar fyrirsjáanlegt, eftir vandræði Varela í síðasta leik kom Darmian inn

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
30
Darmian
16
Carrick
28
Schneiderlin
9
Martial
35
Lingard
8
Mata
39
Rashford

Varamenn: Romero, Fosu-Mensah, Valencia, Fellaini, Schweinsteiger, Januzaj, Memphis.

Lið City var í smá meiðslavandræðum og þar helst að Kompany var ekki með

Hart
Clichy
Demichelis
Mangala
Sagna
Fernandinho
Touré
Sterling
Silva
Navas
Agüero

Það var ekki hægt að segja að það gerðist mikið fyrstu tíu mínúturnar eða svo. City sótti aðeins meira að marki án þess að gera neitt sérlega hættulegt og fyrsta markverða var þegar Smalling fékk ódýrt gult spjald fyrir að toga í Agüero úti á miðjum velli. Gjörsamlega tilgangslaust brot þar. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Manchester City Marcus Rashford 16
Enska úrvalsdeildin Pistlar Ritstjóraálit Stjórinn

Við þurfum að tala um Louis van Gaal

Tryggvi Páll skrifaði þann 18. mars, 2016 | 26 ummæli

Ég var ekkert sérlega æstur í að skrifa þessa upphitun eftir að liðið hrapaði úr Evrópudeildinni í gær. Það má því ímynda sér hvernig stemmarinn er á æfingasvæðinu fyrir næsta leik.

Já, það er skammt stórra högga á milli. Á sunnudaginn skreppur United í hinn enda borgarinnar til þess að mæta City í Manchester-borgarslagnum.

Þessi lið eru í harðri baráttu um fjórða og síðasta Meistaradeildarsætið í deildinni og leikurinn á sunnudag gæti veitt öðru hvoru liðinu gott spark í áttina að Wenger-bikarnum fræga. Spurning hvort að það mætti ekki fara að kalla þetta LvG-bikarinn enda virðist fjórða sætið vera hans helsta markmið. Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal Manchester City Upphitun 26
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Interim pages omitted …
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress