• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Manchester City

Æfingaleikir

Manchester United 2:0 Manchester City

Tryggvi Páll skrifaði þann 21. júlí, 2017 | 2 ummæli

Ef það fór framhjá einhverjum öttu Manchester-liðin tvö kappi í Houston í Bandaríkjunum í nótt í International Champions Cup.

Þetta var fyrsti leikur beggja liða í þessarri keppni sem orðið er aðalmálið hjá stærstu liðum heims á undirbúningstímabilinu. Þetta var í fyrsta sinn sem liðin mættust utan Bretlandseyja og liðið sem hóf leik fyrir United var svona.

https://twitter.com/manutd/status/888201879418810370 Lesa meira

Efnisorð: Manchester City 2
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 0:0 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 27. apríl, 2017 | 15 ummæli

Eftir mikinn baráttuleik skildu Manchesterliðin jöfn á Etihad vellinum. Manchester United er enn einu stigi frá Manchester City en bilið í Liverpool er núna 2 stig. Manchester United á enn leik til góða á Liverpool.

Byrjunarlið okkar manna í kvöld var svona:

1
De Gea
36
Darmian
17
Blind
3
Bailly
25
Valencia
27
Fellaini
16
Carrick
21
Herrera
11
Martial
22
Mkhitaryan
19
Rashford

Varamenn: Romero, Tuanzebe, Fosu-Mensah, Shaw, Young, Lingard, Rooney

Lið heimamanna í Manchester City var svona:

1
Bravo
11
Kolarov
30
Otamendi
4
Kompany
5
Zabaleta
25
Fernandinho
42
Touré
19
Sané
17
Bruyne
7
Sterling
10
Agüero

Varamenn: Caballero, Sagna, Fernando, Navas, Clichy, Gabriel Jesus, A. Garcia Lesa meira

Efnisorð: Etihad Stadium Leikskýrslur Liðsuppstilling Manchester City Marouane Fellaini 15
Enska úrvalsdeildin

Gríðarmikilvægur borgarslagur

Halldór Marteins skrifaði þann 26. apríl, 2017 | 10 ummæli

Fyrir viku síðan skrifaði Tryggvi Páll um það í upphitun fyrir seinni leikinn í Evrópuviðureigninni gegn Anderlecht að þar færi mikilvægasti leikur Manchester United á tímabilinu. Það má segja að þessi leikur sé það á vissan hátt líka. Aprílmánuður hefur verið mjög annasamur, Manchester United hefur þegar spilað 7 leiki í mánuðinum og á enn eftir 2 til viðbótar. Sá fyrri þeirra fer fram á Etihad vellinum í Manchester annað kvöld. Manchester United er aðeins einu stigi á eftir bláklæddu nágrönnunum og aðeins 3 stigum frá Liverpool. Baráttan um 3. og 4. sætið er galopin og þessi leikur mun ekki hafa úrslitaáhrif en hann er samt mjög mikilvægur fyrir þá baráttu. Hann hefst klukkan 19:00 og dómari í leiknum verður Martin Atkinson. Lesa meira

Efnisorð: Etihad Stadium Manchester City Upphitun 10
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 1:0 Manchester City

Halldór Marteins skrifaði þann 26. október, 2016 | 18 ummæli

Það voru margir sem óskuðu þess að sjá Mkhitaryan byrja leikinn gegn Manchester City. En það var ekki í spilunum. Ekki aðeins var Mkhitaryan utan byrjunarliðs heldur var hann ekki einu sinni í hópnum. Og það þrátt fyrir að hafa sést með leikmannahópi Manchester United sem stimplaði sig inn á Lowry hótelið fyrir leik. Svo hafi hann ekki náð að meiðast með einhverjum hætti á hótelinu þá getur maður ekki annað en velt fyrir sér hvort það sé hreinlega eitthvað í gangi með Mkhitaryan og hvort Mourinho treysti honum ekki til að spila. Vonandi er það ekki málið en þetta er farið að líta grunsamlega út. Lesa meira

Efnisorð: EFL Cup Leikskýrslur Manchester City 18
Enska deildarbikarkeppnin

Stór leikur í lítilli keppni – Manchester City kemur aftur í heimsókn

Halldór Marteins skrifaði þann 25. október, 2016 | 9 ummæli

Klukkan 19:00 annað kvöld fer fram óvenju þýðingarmikill leikur í annars heldur þýðingarlítilli keppni þegar nágrannarnir í Manchester City koma í heimsókn á Old Trafford. Þótt báðum liðum sé líklega nokk sama um EFL bikarinn sem slíkan þá munu þau samt koma inn í þennan leik í leit að langþráðum sigri. Stjórarnir eru undir pressu, leikmenn þurfa að stíga upp, það hefur verið að safnast upp pirringur meðal stuðningsmanna liðanna, blöðin hafa kjamsað á óförum síðustu vikna (reyndar töluvert meira United megin) og hlátrasköll stuðningsmanna annarra liða, sem velta sér upp úr hæðnisfullri Þórðargleði, bergmála í eyrunum. Nú er tíminn til að draga fram sokkaskúffurnar og korktappana, nú er tíminn til að byrja að svara almennilega fyrir sig. Það er komið að næsta stóra prófi Manchester United, endurtektarprófi gegn ljósbláklæddum leikmönnum Pep Guardiola. Bring it on! Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Pep Guardiola Upphitun 9
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Interim pages omitted …
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress