• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Kristófer Kristjánsson

Enska úrvalsdeildin

Botnliðið kemur í heimsókn

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 14. apríl, 2018 | Engin ummæli

Botnlið West Bromwich Albion heimsækir Old Trafford á morgun í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Um er að ræða algjöran skyldusigur en okkar menn ættu að mæta galvaskir til leiks eftir frábæran sigur á nágrönnunum um síðustu helgi.

Tímabil West Brom hefur, vægast sagt, verið hörmung. Liðið er langneðst í deildinni með 21 stig, 10 stigum frá öruggu sæti, og hefur ekki unnið í síðustu 15 deildarleikjum sínum (11 töp). Tony Pulis var rekinn í nóvember og arftaki hans, Alan Pardew, var svo rekinn á dögunum. Darren Moore stýrir liðinu tímabundið um þessar mundir. Lesa meira

0
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 Swansea

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 31. mars, 2018 | 6 ummæli

Páskarnir. Engin upphitun og síðbúin leikskýrsla en það verður að hafa það, leikurinn vannst allavega.

José Mourinho hefur farið mikinn í fjölmiðlum undanfarið, svo mikinn í raun að allir hættu að tala um frammistöðu leikmanna Manchester United í nokkrar vikur en í dag snerum við okkur aftur að fótboltanum, loksins.

1
de Gea
18
Young
2
Lindelöf
12
Smalling
25
Valencia
6
Pogba
31
Matic
7
Sánchez
14
Lingard
8
Mata
9
Lukaku

Varamenn: Bailly, Martial, Rashford, Herrera, Shaw, McTominay, Castro Pereira. Lesa meira

6
Enska úrvalsdeildin

Burnley 0:1 Manchester United

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 20. janúar, 2018 | 12 ummæli

Manchester United spyrnti sér aðeins frá Chelsea og Liverpool með sigri á Burnley í dag, þökk sé Anthony Martial sem skoraði eina mark leiksins. Þetta var nokkuð bragðdauft hjá okkar mönnum sem áttu aðeins tvö skot á markið en Martial nýtti annað þeirra áður en Jóhann Berg Guðmundsson þrumaði boltanum í þverslánna úr aukaspyrnu! Burnley reyndu og reyndu í lokin en án árangurs og fjórði sigurinn í fjórum leikjum árið 2018 orðinn að raun. Lesa meira

12
Enska úrvalsdeildin

Spútniklið deildarinnar fær United í heimsókn

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 19. janúar, 2018 | 1 ummæli

Á morgun heimsækjum við Burnley í fjórða leik ársins en 2018 hefur farið vel af stað hjá okkar mönnum. Eftir afar erfiða jólatörn hefur liðið unnið alla þrjá leiki sína á nýju ári án þess að fá á sig mark og vonandi heldur það fína gengi áfram á morgun þegar við heimsækjum Jóhann Berg og félaga á Turf Moor. Það hefur reynst mörgum United mönnum erfitt að huga að leiknum undanfarna daga enda aðalfrétt vikunnar yfirvofandi félagsskipti Alexis Sanchez frá Arsenal. Jose Mourinho talaði stuttlega um kaupin, þar sem Henrikh Mkhitaryan fer í hina áttina, á blaðamannafundi sínum í dag og staðfesti að ekki er búið að ganga frá neinu en að skiptin séu vissulega í vinnslu. Við gleymum því Sílemanninum í bili og hugum að því sem skiptir máli, leiknum sjálfum. Lesa meira

1
Enska úrvalsdeildin

Uppgjörið um Manchester

Kristófer Kristjánsson skrifaði þann 8. desember, 2017 | 3 ummæli

Klukkan 16:30 á sunnudaginn fer fram einn þýðingarmesti Manchesterslagur undanfarna ára. Við höfum auðvitað heyrt þetta áður, grannaslagurinn á Old Trafford í fyrra átti líka að skipta öllu máli eftir að liðin fóru frábærlega af stað og átti titillinn að vera algjörlega á milli Manchester liðanna. Einhverjir héldu svo að City myndi rúlla deildinni upp þegar þeir stóðu uppi sem 2:1 sigurvegarar í fyrsta einvígi Jose Mourinho og Pep Guardiola á Englandi. City endaði í þriðja sæti, 15 stigum frá meisturum Chelsea. Við gerum ekkert grín af þeim fyrir það, enduðum sjálfir í 6. sæti, níu stigum fyrir aftan háværu nágrannana. Lesa meira

3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress