• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Þorsteinn Hjálmsson

Enska úrvalsdeildin

Everton kemur í heimsókn

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 1. október, 2021 | 1 ummæli

Annað laugardags hádegið í röð spilar Manchester United á heimavelli, nú gegn Everton. Vonandi verður niðurstaðan betri en síðasta laugardag þar sem allt fór í vaskinn United megin á lokakafla leiksins, 0-1 tap niðurstaðan. Leikurinn á morgun verður strembinn þar sem Everton hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu, tapað aðeins einum leik og situr við hlið United í töflunni með sama stigafjölda. Leikurinn hefst kl. 11:30 að íslenskum tíma. Lesa meira

Efnisorð: Everton 1
Enska úrvalsdeildin

Þrjú stig og útivallarmet!

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 29. ágúst, 2021 | 11 ummæli

Ole Gunnar Solskjær hefur greinilega verið sammála upphitun minni í gær og skellt Varane og Sancho inn í liðið og tekið Matic af miðjunni. Sennilega voru þessar breytingar það augljósar að þær lágu í augum uppi fyrir hvern sem er sem sá leikinn gegn Southampton. Frábært að fá að sjá Varane loksins í actioni í United treyjuni sem í dag var ljósblá og hvít í retro stíl. Það sem vakti kannski hvað mest athygli var að Pogba var kominn inn á miðja miðjuna þrátt fyrir frábærar framviðstöður á vinstri kantinum í upphafi tímabils. Í hans stað kom Daniel James á kantinn. Cavani var svo kominn á bekkinn og þar að leiðandi í fyrsta skipti í hóp á tímabilinu. Varð þá endanlega staðfest að Ronaldo mun ekki klæðast treyju númer 7 á þessu tímabili þar sem Cavani var skráður með það númer í þessum leik. Lesa meira

Efnisorð: Fred Mason Greenwood Raphaël Varane Wolves 11
Enska úrvalsdeildin

Heimsókn á Molineux á morgun

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 28. ágúst, 2021 | Engin ummæli

Á morgun kl. 15:30 mæta okkar menn liði Wolves. Fellur þessi leikur í algjörann skugga tíðinda gærdagsins þar sem staðfest var að sjálfur Cristiano Ronaldo væri að mæta aftur á Old Trafford sem leikmaður Manchester United. Ótrúleg félagsskipti sem virðast einungis hafa gengið í gegn á örfáum klukkustundum. Farið var yfir hvað gekk á í gær og þá nýju tíma sem framundann eru hjá United með Ronaldo innanborðs í nýjasta hlaðvarpsþætti okkar. Lesa meira

Efnisorð: Cristiano Ronaldo Wolves 0
Enska úrvalsdeildin

Falllið mætir í heimsókn

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 17. maí, 2021 | 7 ummæli

Næst síðasta umferð Ensku úrvalsdeildarinnar hefst á morgun kl. 17:00 með leik okkar manna gegn föllnu liði Fulham á Old Trafford. Mjög óspennandi leikur líkt og flestir þeir leikir sem eftir eru í deildinni. Það er þá ekki nema fyrir þau þrjú lið sem eru fyrir aftann okkur í töflunni. Liverpool, Chelsea og Leicester sem berjast um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Fulham 7
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa 1:3 Manchester United

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 9. maí, 2021 | 10 ummæli

Ole Gunnar Solskjær stillti upp svo gott sem sterkasta liði okkar fyrir leikinn í Birmingham. Cavani var sennilega eini sem var á bekknum sem ætti tilkall inn í okkar sterkasta lið. Það má því draga þá ályktun miðað við uppstillinguna að Ole vilji klára annað sætið sem allra fyrst til að geta einbeitt sér að úrslitaleiknum í lok leiktíðar. 

26
Henderson
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
39
McTominay
6
Pogba
18
Bruno
11
Greenwood
10
Rashford

Bekkur: De Gea, Bailly, Telles, Tuanzebe, Williams, Matic, van de Beek, Cavani og Mata. Lesa meira

Efnisorð: Aaron Wan-Bissaka Bruno Fernandes Edison Cavani Mason Greenwood 10
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Interim pages omitted …
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress