• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Raphaël Varane

Enska úrvalsdeildin

Þrjú stig og útivallarmet!

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 29. ágúst, 2021 | 11 ummæli

Ole Gunnar Solskjær hefur greinilega verið sammála upphitun minni í gær og skellt Varane og Sancho inn í liðið og tekið Matic af miðjunni. Sennilega voru þessar breytingar það augljósar að þær lágu í augum uppi fyrir hvern sem er sem sá leikinn gegn Southampton. Frábært að fá að sjá Varane loksins í actioni í United treyjuni sem í dag var ljósblá og hvít í retro stíl. Það sem vakti kannski hvað mest athygli var að Pogba var kominn inn á miðja miðjuna þrátt fyrir frábærar framviðstöður á vinstri kantinum í upphafi tímabils. Í hans stað kom Daniel James á kantinn. Cavani var svo kominn á bekkinn og þar að leiðandi í fyrsta skipti í hóp á tímabilinu. Varð þá endanlega staðfest að Ronaldo mun ekki klæðast treyju númer 7 á þessu tímabili þar sem Cavani var skráður með það númer í þessum leik. Lesa meira

Efnisorð: Fred Mason Greenwood Raphaël Varane Wolves 11
Enska úrvalsdeildin

United mæta dýrlingunum

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 21. ágúst, 2021 | Engin ummæli

Næsti deildarleikur Manchester United fer fram á morgun en þá heldur liðið suður með sjó og mætir á Saint Mary’s völlinn í Southampton. Eftir griðarlega skemmtilegan og sterkan 5-1 heimasigur gegn Leeds undir stjórn Marcelo Bielsa situr United á toppi deildarinnar (þó einungis eftir einn leik) og má gera ráð fyrir því að þau úrslit hafi ekki gert neitt nema aukið sjálfstraust liðsins. Raphael Varane var kynntur fyrir leikinn og reif upp stemminguna fyrir leik og Jadon Sancho fékk örfáar mínútur og var nálægt því að fagna þeim mínútum með stoðsendingu en nánari úttekt á leiknum var tekin fyrir í síðasta Djöflavarpi vikunnar. Lesa meira

Efnisorð: Jadon Sancho Raphaël Varane Southampton 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 104.þáttur – Ágætis byrjun

Magnús Þór skrifaði þann 19. ágúst, 2021 | Engin ummæli

Maggi, Dóri, Steini og Frikki settust niður og fóru ítarlega yfir stórsigurinn gegn Leeds Utd, félagaskiptagluggann hingað til og hituðu létt upp fyrir leikinn gegn Southampton á sunnudaginn.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan, auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Bruno Fernandes David de Gea Jadon Sancho Leeds Mason Greenwood Paul Pogba Raphaël Varane Southampton Victor Lindelöf 0
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 5:1 Leeds United

Halldór Marteins skrifaði þann 14. ágúst, 2021 | 1 ummæli

Manchester United er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar og verður í eða nálægt toppsætinu eftir umferðina eftir stórgóðan 5-1 sigur á erkifjendunum í Leeds United.

Paul Pogba stjórnaði umferðinni og gaf fjórar stoðsendingar á meðan Bruno Fernanes skoraði 3 mörk (merkilegt nokk þá var ekki eitt þeirra úr víti). Pogba var svo góður að hann gat m.a.s. látið Fred skora. Lesa meira

Efnisorð: Bruno Fernandes Fred Jadon Sancho Mason Greenwood Paul Pogba Raphaël Varane Victor Lindelöf 1
Félagaskipti Leikmenn

Raphaël Varane verður leikmaður Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 27. júlí, 2021 | 4 ummæli

Þegar Raphaël Varane verður búinn að gangast undir læknisskoððun verður hann staðfestur sem leikmaður Manchester United
https://twitter.com/ManUtd/status/1420081351940792323

Efnisorð: Raphaël Varane 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress