Því er oft hent fram að fótbolti sé leikur tveggja hálfleika. Það átti heldur betur við á Etihad í dag. Þó að tímabilið í heild hafi verið ákveðin vonbrigði þá eru samt leikir eins og þessi sem munu lifa lengi í minningunni.
Magnús Þór skrifaði þann | 22 ummæli
Því er oft hent fram að fótbolti sé leikur tveggja hálfleika. Það átti heldur betur við á Etihad í dag. Þó að tímabilið í heild hafi verið ákveðin vonbrigði þá eru samt leikir eins og þessi sem munu lifa lengi í minningunni.
Björn Friðgeir skrifaði þann | 7 ummæli
Það hefur oft áður verið betri stemming fyrir derbyleik Manchester United og Manchester City en leiknum sem fram fer á Etihad kl 16:30 á morgun. Það er aðeins ein spurning sem liggur fyrir: Mun Manchester City tryggja sér Englandsmeistaratitilinn? Til þess þarf City sigur, en annað nægir til þess að leikmenn United þurfa ekki að horfa á fögnuð leikmanna og stuðningsmanna. Einhver kynni að segja að það væri fínt spark í rassinn fyrir leikmenn og þjálfara United að horfa upp á slíkt, en fyrir geðheilsu United stuðningsfólks og almannaöryggi á vellinum er það án efa ekki góð hugmynd. Lesa meira
Runólfur Trausti skrifaði þann | Engin ummæli
Fyrir páskahelgina sem var að enda þá hafði undirritaður aðeins séð Manchester United spila einu sinni og var það í Lundúnum er liðið vann Fulham 1-0 þökk sé marki Wayne Rooney eftir stórbrotnar markvörslur David De Gea. Einnig hafði hann aðeins einu sinni komið á Old Trafford en það var í skoðunarferð sumarið 2005. Því var breytt um páskana 2018.
Það var eflaust í september á síðasta ári þegar einn af ritsjórum síðunnar ákvað ásamt þremur félögum sínum að nú loksins væri kominn tími til að sjá Manchester United spila á Old Trafford. Eflaust hefðum við farið fyrr í vetur en undirritaður ásamt einum af félögunum ákváðu að reyna finna helgi þar sem þeir gætu séð sín lið í neðri deildunum á Englandi spila líka. Þannig var það ákveðið að páskahelgin 2018 yrði yrði fyrir valinu. Stefnt var að því að sjá Peterborough United heimsækja Rotherham United á föstudeginum langa, á laugardeginum var förinni heitið í Leikhús Draumanna að sjá heimamenn etja kappi við Swansea City og að lokum var farið til Lundúna að sjá Dagenham&Redbridge keppa við lið sem ég einfaldlega man ekki hvað heitir. Lesa meira
Kristófer Kristjánsson skrifaði þann | 6 ummæli
Páskarnir. Engin upphitun og síðbúin leikskýrsla en það verður að hafa það, leikurinn vannst allavega.
José Mourinho hefur farið mikinn í fjölmiðlum undanfarið, svo mikinn í raun að allir hættu að tala um frammistöðu leikmanna Manchester United í nokkrar vikur en í dag snerum við okkur aftur að fótboltanum, loksins.
Varamenn: Bailly, Martial, Rashford, Herrera, Shaw, McTominay, Castro Pereira. Lesa meira
Björn Friðgeir skrifaði þann | 15 ummæli
Fréttir um að Paul Pogba yrði líklega ekki með bárust í gærkvöld og í morgun var það staðfest. Óstaðfest var að hann hefði skorist á fæti á æfingu í gær. McTominay var treyst fyrir tveggja manna miðju með Matic og Marcus Rashford kom inn á vinstri kantinn.
Hjá Liverpool var fátt sem kom á óvart, nema helst að James Milner var í liðinu frekar en fyrirliðinn Jordan Henderson. Lesa meira
Vertu með í Fantasy leiknum okkar!