Liðið er komið, enginn Falcao í byrjunarliði en Di María byrjar.
Bekkur: Lindegaard Jones McNair Carrick Mata Januzaj Falcao
Lið Newcastle: Krul, Janmaat, Coloccini, Williamson, R.Taylor, Obertan, Sissoko, Abeid, Ameobi, Riviere, Cisse
Magnús Þór skrifaði þann | 1 ummæli
Liðið er komið, enginn Falcao í byrjunarliði en Di María byrjar.
Bekkur: Lindegaard Jones McNair Carrick Mata Januzaj Falcao
Lið Newcastle: Krul, Janmaat, Coloccini, Williamson, R.Taylor, Obertan, Sissoko, Abeid, Ameobi, Riviere, Cisse
Magnús Þór skrifaði þann | 3 ummæli
Síðast mættust United og Newcastle á öðrum degi jóla. Sá leikur fór fram á Old Trafford og vannst 3:1. Það reyndist eini sigurinn í þeirri jafnteflissúpu sem jólatörnin reyndist vera. Newcastle hefur í millitíðinni farið í gegnum stjóraskipti eftir að Alan Pardew (Pardieu) stakk af og fluttist til London og tók við taumunum hjá Crystal Palace. Eftirmanni hans, John Carver, hefur ekki gengið neitt sérstaklega með liðið en Newcastle er þó í 11. sæti. Ekki amalegur árangur hjá liði sem virðist gera upp á bak reglulega. Á sama tíma hefur gengi United verið töluvert ólíkara en liðið er í bullandi baráttu um meistaradeildarsæti og enn með í bikarnum.
Þessi leikur á morgun verður einfaldlega að vinnast, það er bara ekkert flóknara en það. Sigrar Liverpool á City og Arsenal á Everton hafa sett rosalega pressu á liðið og því má ekkert klikka. Það er alltaf erfitt að giska á hvaða liðsuppstillingu van Gaal mun nota hvert skipti en ég tel að þetta sé alveg eins líklegt og hvað annað:
Tryggvi Páll skrifaði þann | 17 ummæli
Þetta hafðist fyrir rest og heimasigur í höfn. Þessa leiks verður þó líklega helst minnst fyrir það að vera leikurinn þar sem United fann upp nýja hornataktík: Að koma boltanum úr horni eins hratt til David de Gea og hægt er. Mikið var deilt um hvernig liðinu yrði stillt upp inni á vellinum og sitt sýndist hverjum. Liðið hóf þó leik nokkurnveginn svona:
Bekkur: Lindegaard, McNair, Carrick, Fellaini (Falcao), Mata (Rooney), Januzaj (Di Maria), Wilson.
ellioman skrifaði þann | Engin ummæli
Lespakki vikunnar kominn í hús. Áður en þið rennið yfir hann vil ég koma með tvær ábendingar…
Númer eitt: Tjekkið á upphituninni hans Tryggva fyrir leikinn á morgun. Númer tvö: Ef þið fáið upp meldingu frá Telegraph.co.uk um að þið séuð búin með leskvótann, opnið þá greinina í feluglugga (flott þýðing hjá mér?). Í Google Chrome heitir þetta „Incognito Window“ og í Firefox „Private Window“.
Devin Townsend Project – „March Of The Poozers“
Tryggvi Páll skrifaði þann | 6 ummæli
Það var ansi þungt í manni hljóðið eftir leikinn gegn Swansea um síðustu helgi. Þetta fer fljótt að verða að klisju en liðin í baráttunni um Meistaradeildarsætin mega ekki misstíga sig mikið það sem eftir er af tímabilinu. Það var því alveg grautfúlt að missa þennan leik niður í tap, sérstaklega í ljósi þess að Liverpool og Arsenal unnu sína leiki en þetta virðast vera okkar helstu andstæðingar um 3-4. sæti. Staðan er einfaldlega þannig að United má helst ekki tapa leik það sem eftir er tímabilsins, eða hvað?
Miðað við hvernig þetta tímabil hefur spilast og þá leiki sem liðin í 3-7. sæti eiga eftir tel ég það ekki vera fjarstæðukennt að áætla að eitthvað í kringum 70 stig muni duga til þess að vinna Wenger-bikarinn (ná 4.sæti) á þessu tímabili. Það er reyndar mjög nálægt meðaltalinu frá því að úrvalsdeildin fékk að senda 4 lið í Meistaradeildina en síðan þá hefur liðið í 4. sæti að meðaltali verið með 69.5 stig. Arsenal setti met á síðasta tímabili með því að vera með 79 stig í 4. sætinu en það var óvenju gott tímabil hjá félaginu, yfirleitt eru liðin í 4. sæti með um og yfir 70 stig. Ég ætla því að negla þann stigafjölda niður sem takmarkið sem Louis van Gaal og félagar þurfa að ná.
Vertu með í Fantasy leiknum okkar!