Því er oft hent fram að fótbolti sé leikur tveggja hálfleika. Það átti heldur betur við á Etihad í dag. Þó að tímabilið í heild hafi verið ákveðin vonbrigði þá eru samt leikir eins og þessi sem munu lifa lengi í minningunni.
Magnús Þór skrifaði þann | 22 ummæli
Því er oft hent fram að fótbolti sé leikur tveggja hálfleika. Það átti heldur betur við á Etihad í dag. Þó að tímabilið í heild hafi verið ákveðin vonbrigði þá eru samt leikir eins og þessi sem munu lifa lengi í minningunni.
Magnús Þór skrifaði þann | 14 ummæli
Manchester United lagði Huddersfield Town með tveimur mörkum gegn engu. Það var risa yfirlýsing hjá Mourinho að byrja þennan leik með Paul Pogba á varamannabekknum eftir skelfilega frammistöðu hans gegn Tottenham í miðri viku. Það var ekki eina breytingin sem gerð var á liðinu en Marcus Rojo og Luke Shaw fóru í vörnina í stað þeirra Ashley Young og Phil Jones en sá síðarnefndi var ekki einu sinni í hóp frekar en Ander Herrera. Eins og kom fram þá var Pogba settur á bekkinn en hinn ungi og efnilega Scott McTominay fékk sénsinn en hann er einn af þessum efnilegu strákum sem Mourinho hefur verið að gefa tækifæri í vetur. Lesa meira
Magnús Þór skrifaði þann | 11 ummæli
Eftir strembna fjögurra leikja hrinu þar sem leikið var á útivelli var loksins komið að leik á Old Trafford. Ekki voru miklar sviptingar í leikmannahópi Manchester United en Eric Bailly kom tilbaka eftir mánaðar fjarveru sökum meiðsla og munar um minna. Sömu sögu er ekki hægt að segja um lið Tottenham Hotspur en liðið var án Harry Kane sem meiddist í leiknum gegn Liverpool á Wembley. Bæði lið þurftu nauðsynlega þrjú stig úr þessum leik til að halda í við Manchester City. Lesa meira
Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann | 16 ummæli
Í kvöld var förinni heitið til Wales í 16. liða úrslitum deildarbikarsins. Eins og við var að búast mætti United með hálfgert varalið á völlinn þar sem okkar bíður erfiður heimaleikur gegn Tottenham sem hafa verið á miklu flugi undanfarið. Lykilmenn eins og De Gea, Mkhitaryan, Mata og Valencia voru hvíldir og Lukaku og Matic komu inná sem varamenn. Liðið var því talsvert breytt frá deildarleiknum um síðustu helgi og nokkrir af ungu strákunum fengu að spreyta sig. Lesa meira
Magnús Þór skrifaði þann | 31 ummæli
Þetta er var bara andskoti léleg frammistaða hjá okkur mönnum í dag. Liðið var hægt, fyrirsjáanlegt og ógnaði marki Huddersfield aldrei að neinu viti. Leikmenn Huddersfield voru að berjast virkilega vel í leiknum og átti alveg skilið að vinna þennan leik. Það má deila um hvort að United hefði átt að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum eftir að það virtist sem að Kachunga hefði brotið á Herra inni í teig. United lifnaði aðeins við undir lok leiksins þegar Lukaku lagði upp mark fyrir Rashford en það reyndist einfaldlega of lítið og of seint. Lesa meira
Vertu með í Fantasy leiknum okkar!