• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tottenham Hotspur

Enska úrvalsdeildin

Tottenham 0:0 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. desember, 2014 | 14 ummæli

Hvernig skoruðum við ekki í þessum leik?

Byrjunarliðið var svona. Óbreytt frá sigurleiknum gegn Newcastle á annan í jólum.

1
De Gea
6
Evans
4
Jones
33
McNair
18
Young
8
Mata
10
Rooney
16
Carrick
25
Valencia
9
Falcao
20
Van Persie

Bekkur: Lindegaard, Rafael, Smalling, Shaw, Fletcher, A.Pereira, Wilson. 

Tottenham:

Lloris
Davies
Vertonghen
Fazio
Chiriches
Mason
Stambouli
Chadli
Eriksen
Townsend
Kane

Bekkur: Vorm, Dier, Walker, Lamela, Dembele, Paulinho, Soldado

Tottenham getur líklega þakkað Hugo Lloris fyrir það að United hafi ekki kafsiglt Tottenham í fyrri hálfleik og gert út um þennan leik. Við fengum fjöldamörg færi og þrátt fyrir að vera með Robin van Persie, Wayne Rooney, Juan Mata og Radame Falcao í fremstu víglínu vantaði meiri gæði í að klára færin. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Tottenham Hotspur 14
Enska úrvalsdeildin

JólaUnited mætir JólaTottenham á morgun.

Tryggvi Páll skrifaði þann 27. desember, 2014 | 2 ummæli

Það er skammt stórra högga á milli. Eftir fín úrslit í gær eru Louis van Gaal og félagar væntanlega á leið til London þar sem útileikur gegn Tottenham bíður Manchester United. Þessi jólageðveiki er kannski ekki alveg það besta fyrir leikmennina en sem stuðningsmaður er þetta auðvitað bara snilld. Þó að tíminn týnist iðulega í jólafríinu er auðvelt að benda á að hvað þessi leikjadagskrá er galin með því að ímynda sér að þetta prógram væri t.d. sett á í mars. Getið þið ímyndað ykkur United spila leik á föstudegi og svo strax aftur á sunnudegi? Sú var raunin þessi jól og viðbúið að einhver þreyta sitji eftir í okkar mönnum. Eðlilega. Lesa meira

Efnisorð: Tottenham Hotspur Upphitun 2
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:2 Tottenham Hotspur

Sigurjón skrifaði þann 1. janúar, 2014 | 26 ummæli

Úfff, þetta voru svo sannarlega svekkjandi úrslit svo ekki sé meira sagt. Tottenham sækir annan sigur sinn í röð á Old Trafford, eitthvað sem hefur ekki gerst síðan 1989. Förum aðeins yfir þetta, byrjum á liðinu:

De Gea

Smalling Vidic Evans Evra

Carrick Cleverley

Valencia Rooney Januzaj

Welbeck

Varamenn: Lindegaard, Büttner, Ferdinand, Fletcher, Kagawa, Young, Hernandez.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti af hálfu United, liðið spilaði að manni fannst 4-4-1-1, mjög hátt á vellinum, voru grimmir í pressunni og héldu boltanum vel. Welbeck var sprækur frammi og miðjan öll að gera bara fína hluti. Valencia var sérstaklega sprækur, með Rose gjörsamlega í vasanum og krossaði boltanum trekk í trekk, eitthvað sem hefur varla sést í allan vetur. Þrátt fyrir alla þessa krossa þá náði United ekki að skapa sér nein hættuleg færi, maður var alltaf að bíða eftir því að boltinn rataði á einhvern United mann sem myndi hamra honum í netið, en í staðinn fóru allir boltar í lappirnar á varnarmönnum Tottenham. Þetta tíst segir í raun allt sem segja þarf: Lesa meira

Efnisorð: Danny Welbeck Leikskýrslur Tottenham Hotspur 26
Enska úrvalsdeildin

Tottenham kemur í heimsókn

Sigurjón skrifaði þann 31. desember, 2013 | 3 ummæli

Manchester United byrjar árið 2014 á gíðarlega mikilvægum leik gegn Tottenham á Old Trafford. Okkar menn hafa verið á ágætis skriði undanfarið, unnið fjóra leiki í röð, leikir sem menn hafa nú á undanförnum árum ætlast til þess að United vinni. Morgundagurinn er því gott tækifæri fyrir okkar menn að sýna toppliðunum að þeir ætli sér ekki að gefa tommu eftir, nú og svo væri það líka bónus að ýta Tottenham 3 stigum aftur fyrir sig, en þeir eru með 34 stig eins og United. Lesa meira

Efnisorð: Tottenham Hotspur Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Tottenham 2:2 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 1. desember, 2013 | 15 ummæli

Jafntefli er niðurstaðan eftir hörkuleik á White Hart Lane. Leikurinn var opinn og nokkuð skemmtilegur og spennandi fram að lokaflautunni. Tvisvar sinnum komust Tottenham yfir í leiknum og jafnharðan jafnaði Wayne Rooney fyrir okkur.

Nokkrar hugleiðingar og viðbrögð

  • Í þessum leik sannaðist enn og aftur að það er hreinlega ekki næg breidd á miðjunni.
  • Danny Welbeck virkaði ekki alveg 100%.
  • Anderson virðist einungis vera á bekknum til að varamenn séu 7 talsins.
  • Tom Cleverley spilar ekki mjög „cleverly“.
  • Wayne Rooney er klárlega besti leikmaður deildarinnar það sem af er.
  • Enn og aftur gefum við aukaspyrnur á stórhættulegum stað og er okkur refsað fyrir það.
  • Sá Patrice Evra sem lék í dag er ekki sá sami og við höfum verið sjá síðasta árið.
  • Chris Smalling getur ekki gefið boltann fyrir.
  • Eins gott að eina ástæðan fyrir því að Smalling sé tekinn framyfir Rafael séu meiðsli síðarnefnda.
  • Danny Welbeck, Phil Jones og Chris Smalling léku allir úr stöðu í dag og það sást.
  • Erum 9 stigum á eftir toppliði Arsenal en mig grunar að margt eigi enn eftir að breytast áður en yfir lýkur.

Maður leiksins er að sjálfsögðu Wayne Rooney Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Tottenham Hotspur 15
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress