• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Sundurlyndi lagt niður fyrir ferð gegn Sunderland

Björn Friðgeir skrifaði þann 4. október, 2013 | 5 ummæli

Sunderland - Manchester UnitedVið skulum ekkert vera að velta okkur upp úr nýlegu gengi United fyrir þessa upphitun fyrir ferð okkar á Leikvang ljóssins við bakka Wear seinni partinn á morgun, en einbeita okkur að því að skoða hvað Sunderland er hroðalega lélegt.

Eitt stig úr sex leikjum, markatalan 4-14 og strax búið að rekja stjórann, ekki-svo-elskulega fasistann Paolo di Canio. Það er vægt til orða tekið að ástandið sé erfitt í Sunderland. Vinur okkar, John O’Shea er fyrirliði liðsins og líklega þekktasta nafnið í hópnum, þó að þarna séu gamlir úrvalsdeildarjaxlar á borð við Lee Cattermole og Sebastian  Larsson. Steven Fletcher er meiddur sem og annar vinur okkar, We’vegotwesley Brown. Fabio Borini er á láni frá Liverpool og maðurinn sem mun sjá um að halda vestur-Íslendingnum Aaron Johanson úti úr landsliði, Jozy Altidore, er frammi með honum. Það er spurning hvort þetta lið fær einhvern kraft úr því að vera lausir við di Canio, þó ekki væri þess of vart um síðustu helgi þegar þeir töpuðu gegn Liverpool

Það verður fróðlegt að sjá hvaða leið Moyes fer í liðsvalinu

De Gea

Rafael Smalling Vidic Evra

Carrick Fellaini

Valencia Rooney Zaha

Van Persie

Það er vika í leik eftir þennan þannig að hvíld og rótering þarf ekki að vera neitt höfuðmál og því vonast ég til að sjá vörnina þarna inni eins og á miðvikudag, þeir stóðu sig vel. Ekki hef ég hugmynd um frekar en aðrir hvers vegna Zaha fær ekki tækifæri, amk á bekknum, enda er ég ekki daglegur gestur á Carrington. Set hann þarna inn bara til að hafa gaman af þessu.

Annar spái ég sterku liði, United þarf á því að halda að vinna auðunninn leik 1-3.

Efnisorð: Sunderland Upphitun 5

Reader Interactions

Comments

  1. Heimir says

    4. október, 2013 at 19:36

    langar eiginlega að gera kröfu á clean-sheet og fá að sjá Kagawa fá fullar 90 min fyrir aftan Rooney og RVP….. Fellaini hefur ekki hrifið mig nóg til að eiga tilkall til þess að vera í byrjunarliði og myndi allveg vilja sjá Carrick jafnvel detta út því mér hefur hann fundist virka latur þegar það á að hlaupa til baka…. Jones búinn að vera mjög duglegur í þeim leikjum sem hann hefur fengið og væri finnst mér ekki slæm hugmynd að skella honum djúpum með Kagawa og sjá svo Valencia og Zaha sitthvoru meginn. Finnst mjög sérstakt að maður sem spilaði mjög mikið á undirbúningstímabilinu sé ekki buinn að spila neitt þar sem komið er af tímabilinu þar að segja Zaha.

  2. Runólfur says

    4. október, 2013 at 21:45

    Þetta verður 0-1 eða 1-2 sigur. Engin flugeldasýning. Liverpool átti í mun meira basli með Sunderland en lokatölurnar gáfu til kynna. Lið gíra sig líka alltaf vs. United svo að … ég tek 3 stig. Sama hvernig þau koma :)

  3. Kristján says

    4. október, 2013 at 23:22

    Ég væri vel til í að sjá Januzaj spila við hlið Persie í 90mín
    Væri líka fínt að gefa Guillermo Varela tækfæri, og síðan henda inn Kagawa

    Mín spá er 1-3
    Persie með 2. og Welbeck/Kagawa (ef hann verður í liði)

    GGMU

  4. Björn Friðgeir says

    5. október, 2013 at 10:09

    Þegar ég sagði það væri vika í leik eftir þennan meinti ég auðvitað tvær vikur. Landsleikjahlé.

  5. Beggi says

    5. október, 2013 at 12:46

    Sammála með að vilja sjá clean sheet í dag, og mörk úr opnu spili jafnvel. En hefði viljað sjá Valencia fá öxina í dag. Hann sleppti nú manninum sínum í leiknum á móti Shaktar sem skoraði, hefur ekki verið að nenna því að trakka til baka í byrjun leiktíðar. En ég hef mikla trú á að liðið rífi sig í gang í dag. Koma svo!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress