• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2015:22

Tryggvi Páll skrifaði þann 18. júní, 2015 | 4 ummæli

Rauðu djöflarnir

  • Leikjadagskráin fyrir komandi tímabil var kynnt í vikunni. Við rýndum aðeins í hana.
  • Memphis Depay var opinberlega kynntur sem leikmaður Manchester United.

Slúður

  • The Mirror segir Inter hafa boðið 8 milljónir punda í Chicharito.
  • Roberto Firmino hefur verið orðaður við United. Blaðamaður Telegraph kíkti nánar á þennan leikmann.
  • Hummels er ennþá skotmark nr. 1 í miðvarðastöðuna þrátt fyrir hávært Otamendi slúður.
  • Miguel Delaney veltir fyrir sér muninum á Hummels og Otamendi.
  • United ætlar að hafna fyrsta boði Real Madrid í De Gea sem hljóðar upp á pakka af tyggjó og notaða Mözdu (13 milljónir punda).
  • United vill fá Varane í skiptum fyrir De Gea.
  • Nathaniel Clyne er að öllum líkindum á útleið frá Southampton.
  • Robin van Persie er of dýr fyrir Galatasaray.
  • Harry Kane verður ekki seldur til United samkvæmt heimildarmönnum ESPN.
  • Romelu Lukaku gæti verið nýjasta skotmark United .

Leikmenn

  • Umboðsmaður Januzaj segir að Belginn ungi verði hjá United á næsta tímabili og að United muni hafna öllum tilboðum í hann.
  • Andreas Peireira hefur staðið sig vel með u20 ára liði Brasilíu sem er komið í úrslit á HM u20.
  • Scott hjá ROM skrifaði nokkur orð um Memphis Depay.
  • Ben Amos er búinn að skrifa undir hjá Bolton.

United

  • Woodward þarf að tryggja að United fái einhverja leikmenn Real Madrid í skiptum fyrir David de Gea að mati Samuel Luckhurst.
  • Louis van Gaal telur að skipulagið á æfingarferðalaginu í sumar sé mun betra í fyrra og muni verða þess valdandi að liði nái fljúgandi starti í deildinni.
  • Talandi um æfingarferðalagið, Van Gaal ætlar að taka með sér marga unglingaliðsleikmenn til Bandaríkjanna.
  • Manchester United íhugar að kaupa Hotel Football af Gary Neville og Ryan Giggs
  • Darren Richman telur að Andy Cole eigi skilið að vera ofar á listanum yfir bestu framherja í sögu United.
  • Fyrrum Liverpool leikmaðurinn Michael Owen var vonsvikinn með frammistöðu United á síðasta tímabili.
  • Sjúkraþjálfarinn sem United nældi í frá Southampton í haust er farinn frá félaginu, óvíst er hvort hann var rekinn eða hvort hann sagði upp.

Annað

Hér má finna skrá með öllum leikjum United á næsta tímabili fyrir dagatalsforrit á borð við Calendar frá Apple og Google Calendar. Hún uppfærist sjálfkrafa með öllum breytingum á leikjadagskrá sem gerðar verða.

Mynd vikunnar

9AD391A6C5F54751B81859799E76B4CF.ashx

Lag vikunnar

Modest Mouse – Lampshades on Fire

4

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Birkir says

    20. júní, 2015 at 15:54

    Á ekkert að fara að versla? Maður er orðinn óþreyjufullur

    0
  2. 2

    Karl Garðars says

    21. júní, 2015 at 11:57

    Erum við að tala um Herr Schweinsteiger..?? Þá yrði ég sáttur! Þvílíkur meistari þessi leikmaður!!

    0
  3. 3

    Helgi P says

    21. júní, 2015 at 20:26

    Schweinsteiger er búinn að vera minn uppáhalds maður í mörg ár

    0
  4. 4

    panzer says

    22. júní, 2015 at 07:55

    Varðanid þetta Ramos slúður, heldur eitthver að þetta sé Woodward að spila hardball við Real Madrid útaf De Gea? Er þetta ekki aðallega bara umboðsmaður Ramos að reyna fá betri samning?

    Það er fara verða frekar þreytt útspil hjá umboðsmönnum leikmanna að orða þá við Man. Utd. í hvert skipti sem þeir fara í samningsviðræður. Dani Alves um daginn og nú Sergio Ramos. Sergio Ramos á tvö ár eftir af samningnum og vill skv. eitthverju slúðri tvöfalda laun sín í 10m evra ári. Gott og blessað og gangi honum vel í þeirri baráttu. Nú keppast öll slúðurblöðin að selja þær fréttir að hann sé með tilboð frá United og þetta sé bara allt saman mjög líklegt.

    Í næstu viku kemur svo pottþétt frétt um nýja samninginn hans Ramos og hann hafi ekki getað annað en hafnað ‘næstum-því’ tilboðin frá United.

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress