• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Brentford 1:1 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 30. mars, 2024 | 5 ummæli

Manchester United ferðaðist til Lundúna og heimsótti Brentford. Síðasti leikur United var 4:3 sigurinn gegn Liverpool í FA bikarnum og Brentford hafa átt ansi brösugt tímabil og hafa verið að tapa helling af stigum. Liðin enduðu á að taka sitthvort stigið úr leiknum en United hafa sjaldnar verið hægari og lélegri en í kvöld. Heimamenn voru á hálfu skrefi á undan allan leikinn og litu út á köflum út fyrir að vera 1-2 leikmönnum fleiri. Brentford átti 31 marktilraun í kvöld og hefðu með meiri gæðum unnið þægilegan sigur. Framlína United var langt frá sínu besta og miðjuparið Mainoo og McTominay var lítil fyrirstaða en Brentford áttu mjög auðvelt að spila í gegnum þá félaga. Einnig var hápressa United frekar döpur og virtist unnin af hálfum hug. En og aftur fá andstæðingar eins margar snertingar og þeir vilja inní markteig United en tölfræðin sú var Brentford ríflega í hag. Ten Hag ákvað að víxla Wan-Bissaka og Dalot í kvöld og var enski bakvörðurinn vinstra megin í dag en skilaði ekki miklu sóknarlega. Einhverra hluta vegna spilaði United þannig að Rashford og Garnacho tvíteymdu vinstri kantinn en það skilaði engu.

Það jákvæða við þennan leik er að Mason Mount skorar ágætt mark, Martínez og Maguire eru komnir aftur en sá síðarnefndi leit ekki vel út í sinni innkomu. Það er síðan týpískt United að missa báða miðverðina sem byrjuðu leikinn útaf vegna meiðsla.

Eftir sigra Aston Villa og Tottenham í dag og þetta jafntefli í kvöld verður að segjast að Meistaradeildarsæti hlýtur að teljast óraunhæft en næstu leikir í deildinni eru gegn Chelsea og Liverpool.

Efnisorð: Leikskýrsla Leikskýrslur 5

Reader Interactions

Comments

  1. SHS says

    31. mars, 2024 at 00:16

    Einn versti leikurinn á tímabilinu.

  2. Gunnar G says

    31. mars, 2024 at 14:03

    Meiri viðbjóðurinn þessi leikur hjá Manchester United.
    Gjörsamlega hræðilegt í alla staði.
    Enn leikur liðsins þessa dagana er mér persónulega ekki mesta áhyggjuefnið sem stuðningsmaður Manchester United eins furðulegt og það nú hljómar.
    Mitt mesta áhyggjuefnið er að menn í æðstu stöðum félagsins séu virkilega að íhuga það að ráða Gareth Southgate sem stjóra liðsins.
    Ef það er í alvöru raunin þá spyr maður sig á hvaða vegferð þeir menn eru. Fylgjast þeir EKKERT með fótbolta?
    Það yrði gjörsamlega glórulaus ákvörðun. Sú allra versta sem hægt er að hugsa sér.
    Ég held í alvöru að ég segi skilið við enskan fótbolta ef af verður.
    Ég get ekki horft á Manchester United með Southgate sem þjálfara. Það er á hreinu.

  3. Zorro says

    31. mars, 2024 at 14:37

    Man.Utd myndi ekki ráða við kvennalið…..þetta er hrikalegt…Roy Keane var i viðtali…og hann hló…hættur að vera reiður og sorgmæddur…Ten Hag verður látinn fara…fólk sem horfir varla a fótbolta er undrandi yfir þessu…maðurinn er vonlaus og leiðinlegur…Brentford með 31 marktilraun..4 i treverkið…við 1 skot…strákar það gerist ekki mikið lélegra😠😠

  4. Gummi says

    31. mars, 2024 at 15:52

    Eg er ekki að sjá þetta lið vinna Coventry við erum bara eins og C deildarlið með ömurlegan stjóra

  5. Einar says

    1. apríl, 2024 at 13:56

    Slysaðist til að horfa á MOTD. Getur einhver sagt mér hvað Martinez var að gera í markinu hjá Toney?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress