• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

ellioman

Enska úrvalsdeildin

Stoke kemur í heimsókn í kvöld

ellioman skrifaði þann 2. febrúar, 2016 | Engin ummæli

Þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég er fenginn til að skrifa tvær upphitanir í röð og það er gaman að velta fyrir sér er hversu mikið síðasti fótboltaleikur hefur áhrif á hugarfar manns þegar það kemur að því að hugsa til þess næsta.

Fyrir leikinn gegn Derby hafði United tapað 0-1 gegn Southampton í alveg afskaplega daufum leik sem Bjössi lýsti svona:

Þetta var hreint skelfilegur leikur af hálfu United. Allt það slæma sem við höfum verið að sjá í leikjum síðustu mánuða var kýrskýrt. Það er enginn hraði í leik liðsins, það skapast nær engin færi, og það er eins og miðjan geti ekkert gert til að skapa framávið. Lesa meira

Efnisorð: Stoke City Upphitun 0
Enska bikarkeppnin

United heimsækir Derby County á Pride Park

ellioman skrifaði þann 28. janúar, 2016 | 2 ummæli

Þá er komið að því að United fær örlítið frí frá deildarkeppninni þar sem fjórða umferð FA bikarkeppninnar verður spiluð á morgun. Það er nú ekki algengt að föstudagsleiki en ég persónulega er bara ágætlega hrifinn af því (#PabbaSkoðanir). Leikurinn á morgun verður spilaður kl 19:55 á 33 þús manna Pride Park þar sem United mætir Derby County FC.

Fyrir gullfiskana sem eru að lesa þá komust United áfram með 1-0 sigri á Sheffield United í hreint út sagt frábærum fótboltaleik (örlítil kaldhæðni hérna). Sá leikur stefndi í framlengingu þegar Dean Hammond, varnarmaður Sheffield United, ákvað á 93′ mínútu að renna sér í glórulausa tæklingu inn í vítateig sem felldi Memphis. Dómarinn gat ekki annað en dæmt víti og örugg vítaspyrna Rooney kom United áfram. Á sama tíma sigraði Derby Hartlepool á útivelli með tveimur mörkum gegn einu (Vídeó með brot af því besta úr þeim leik). Lesa meira

Efnisorð: Derby County Upphitun 2
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2016:02

ellioman skrifaði þann 25. janúar, 2016 | Engin ummæli

Lesefni

Aðalfrétt vikunnar er að Jose Mourinho hefur skrifað sex blaðsíðna bréf til stjórnar United þar sem hann lýsir því hann myndi gera sem stjóri United

Skyldulesning vikunnar. Rob Smyth les stuðningsmönnum nútímans pistilinn. Ansi margt til í þessu

Andy Mitten segir að leikmenn United hafi krafist þess að LvG gerði ýmsar breytingar, sem hann og gerði.

United mun endurheimta sæti sitt sem ríkasta félagslið heims á næsta ári. Lesa meira

0
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2015:39

ellioman skrifaði þann 26. nóvember, 2015 | 2 ummæli

Rauðu djöflarnir

Chris Smalling er

leikmaður októbermánaðar Lesa meira

2
Enska úrvalsdeildin

Watford 1:2 Manchester United

ellioman skrifaði þann 21. nóvember, 2015 | 11 ummæli

United sigraði Watford með tveimur mörkum gegn einu í erfiðum útileik á Vicarage Road, heimavelli Watford.

Þetta var soldið öðruvísi leikur en við höfum komið til með að venjast á þessari leiktíð þar sem við höfum horft á United halda boltanum í óratíma án þess að ná að skapa mikið af góðum færum en stjórna hinsvegar leiknum gjörsamlega. Frammistaðan í dag minnti meira á United með Moyes stjórnvölinn þar sem liðin skiptu boltanum nokkuð jafnt á milli sín, sótt var á báðum endum, mikið um klaufamistök og hættuleg færi. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Watford 11
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Interim pages omitted …
  • Page 26
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress