• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Staðfest

Staðfest

Harry Maguire er leikmaður Manchester United *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 5. ágúst, 2019 | 23 ummæli

https://twitter.com/manutd/status/1158340287028224001?s=21

Það eru rúm tvö ár síðan okkar eigin Halldór skrifaði:

Það er vert að minnast sérstaklega á varnarmanninn Harry Maguire. Hann er ungur leikmaður, mikill turn og gríðarlegur skallamaður. Lætur finna vel fyrir sér. Þrátt fyrir að Hull hafi tapað síðasta leik 2-0 þá valdi tölfræðisíðan WhoScored hann mann leiksins með 9,6 í einkunn. Það er fáheyrt að leikmenn nái slíkum einkunnum án þess að koma beint að eins og 2 mörkum auk þess að standa sig vel á öðrum sviðum. Einkunn Maguire útskýrist til dæmis af því að hann fór upp í 10 skallaeinvígi og vann 9 þeirra, vann allar 8 tæklingar sínar, komst 7 sinnum inn í sendingar andstæðinga, hreinsaði 7 bolta frá marki Hull, varði 3 fyrirgjafir, hafði betur í 5 af 6 skiptum sem hann reyndi að taka menn á og átti auk þess flestar marktilraunir síns liðs (4). Sannkallaður stórleikur hjá manninum. Lesa meira

Efnisorð: Harry Maguire Mike Phelan Ole Gunnar Solskjær 23
Enska úrvalsdeildin Leikmenn Staðfest

Aaron Wan-Bissaka er nýr leikmaður Manchester United *staðfest*

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 29. júní, 2019 | 25 ummæli

Þá hefur Manchester United gengið frá öðrum kaupunum í sumar en fyrr í mánuðinum gekk Daniel James til liðs við Rauðu djöflana. Að þessu sinni er það Aaron Wan-Bissaka en hann er 21 árs gamall hægri bakvörður sem kemur frá Crystal Palace.

https://twitter.com/manutd/status/1144924076886167553?s=21

Orðrómur þess efnis að Manchester United hefði áhuga á leikmanninum hefur lengi verið á sveimi en fjölmörg lið voru sögð áhugasöm. Ole Gunnar Solskjær virðist þegar vera búinn að hafa breyta stefnu félagsins á leikmannamarkaðinum og færa áhersluna af stjórstjörnuleikmönnum yfir á unga, óreyndari leikmenn. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikmannakaup 25
Staðfest

Daniel James er leikmaður Manchester United *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. júní, 2019 | 33 ummæli

*uppfært 12. júní kl 14:08*

Það er orðið langt síðan að fyrsti orðrómurinn um að United ætlaði sér að kaupa Daniel James, 21 árs leikmann Swansea. Þessi orðrómur virtist alltaf nokkuð traustur, þó dregist hafi á langinn að ganga frá þessu og ýmis önnur lið nefnd í tengslum við drenginn.

Ein ástæða þess var sú að faðir James lést í síðasta mánuði og skiljanlega setti það strik í reikninginn. Lesa meira

Efnisorð: Daniel James 33
Staðfest

Marouane Fellaini seldur til Kína *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. febrúar, 2019 | 3 ummæli

Fimm og hálfs árs dvöl Marouane Fellaini er lokið hjá United. United hefur staðfest að hann mun ganga til liðs við Shandong Luneng og söluverðið mun vera tíu og hálf milljón punda.

https://twitter.com/ManUtd/status/1091359161961586689

Það er óhætt að segja að enginn leikmaður United hafi verið jafn umdeildur jafn lengi og Fellaini. Allt frá því að hann var einu kaup David Moyes fyrsta, og eina, sumar Moyes í starfi, keyptur á síðasta degi gluggans, fimm milljónum dýrar en hann hefði verið nokkrum vikum fyrr og þar til Ole Gunnar Solskjær tók við starfi framkvæmdastjóra hefur hann verið Plan B holdi klætt. Stór og hálfklunnalegur og með betri móttökutækni með kassanum en fótunum, og reyndar betri á kassann en flestir leikmenn með fótunum. Lesa meira

Efnisorð: Marouane Fellaini 3
Staðfest

Daley Blind farinn heim til Ajax *staðfest*

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. júlí, 2018 | Engin ummæli

Í gærkvöld staðfesti United það sem legið hafði í loftinu: United og Ajax höfðu komist að samkomulagi um verð á Daley Blind og hann heldur aftur til Ajax. Verðið 14,6 milljónir punda og hugsanlega fjórar milljónir í aukagreiðslur, og nú hefur United staðfest að Daley er farinn

Ferill Blind hjá United var alveg þokkalegur þessi fjögur ár, þó síðasta tímabil hafi hann ekki komið við sögu. Hans verður helst minnst fyrir geysigóðan leik í úrslitum Evrópudeildarinnar gegn Ajax í fyrravor en var að öðru leyti allrahandsmiður í vörninni, sem miðvörður og vinstri bakvörður þegar þurfti. Hans besta staða er líklega afturliggjandi miðjumaður en hann fékk fá tækifæri sem slíkur og var líklega ekki nógu sterkur til að gegna því hlutverki í Englandi. Lesa meira

Efnisorð: Daley Blind 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 11
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress