• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:1 Sunderland

Halldór Marteins skrifaði þann 26. desember, 2016 | 9 ummæli

Það verður seint sagt að endurkomu David Moyes á Old Trafford hafi verið beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Flestir vilja sjálfsagt gleyma því að hann hafi nokkurn tímann stýrt Manchester United. En hann hefur það víst á ferilskránni og var mættur á sinn gamla heimavöll í dag með John O’Shea og félaga í Sunderland. Gamli squadplayerkóngurinn O’Shea var þó á bekknum í dag. Byrjunarlið Manchester United í leiknum var á þessa leið:

1
De Gea
17
Blind
5
Rojo
4
Jones
25
Valencia
6
Pogba
16
Carrick
21
Herrera
14
Lingard
9
Zlatan
8
Mata

Varamenn: Romero, Darmian, Smalling, Fellaini, Mkhitaryan, Martial, Rashford

Lið Sunderland var þannig skipað:

13
Pickford
3
van Aanholt
5
Djilobodji
23
Koné
2
Jones
17
Ndong
4
Denayer
7
Larsson
9
Borini
18
Defoe
28
Anichebe

Varamenn: Mannone, Love, Asoro, O’Shea, Khazri, Embleton, Honeyman

Embed from Getty Images

Leikurinn

Það kom lítið á óvart hvernig leikurinn spilaðist til að byrja með. Manchester United var mun meira með boltann en Sunderland lá til baka og freistaði þess að ná snöggum sóknum.

Eftir fyrstu 20 mínúturnar voru liðin með álíka margar marktilraunir en Sunderland þó með fleiri á rammann. Sunderland fékk hættuleg færi um miðjan hálfleikinn en United endaði hálfleikinn betur, sótti töluvert og lét vaða á markið. Sérstaklega var Paul Pogba duglegur í sókninni, hann virtist staðráðinn í að skora í leiknum.

Embed from Getty Images

Reyndar hefði Manchester United getað fengið vítaspyrnu eftir u.þ.b. 20 mínútna leik er Juan Mata var straujaður niður þegar hann var við það að komast einn í gegn. En Manchester United hefur aðeins fengið eitt víti í deildinni í vetur og þau virðast ekki ætla að verða mikið fleiri, þrátt fyrir að þau hefðu nú þegar átt að verða mun fleiri.

Á 39. mínútu náði United þó að brjóta ísinn. Marcos Rojo bar boltann þá vel upp völlinn, gaf hann á Zlatan vinstra megin í teignum og hélt hlaupinu áfram inn í teiginn. Daley Blind fylgdi í humátt á eftir Rojo og tók hlaupið innan á Zlatan. Zlatan sá það betur en varnarmenn Sunderland og gaf hárfína sendingu inn í hlaupaleið Blind. Hollendingurinn tók eina snertingu með hægri þar sem hann lagði boltann fyrir skotfótinn og átti svo þéttingsfast skot meðfram jörðinni, í gegnum þvöguna í teignum og alveg út við stöng. Flott mark og vel gert hjá Rojo, Zlatan og Blind.

Embed from Getty Images

Manchester United fór því inn í leikhléð með verðskuldaða forystu.

Seinni hálfleikurinn hófst með látum þegar Zlatan vann boltann af harðfylgi af varnarmanni Sunderland og fann Pogba á hættulegum stað en sendingin á Frakkann var ekki nægilega góð svo hættulegt tækifæri rann út í sandinn. En þetta gaf tóninn fyrir seinni hálfleikinn.

Áfram héldu leikmenn United að skapa sér færi, sérstaklega þeir Zlatan og Pogba. En ýmist náðu þeir ekki alveg að setja boltann á rammann eða Pickford í marki Sunderland varði. Þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum kom Henrikh Mkhitaryan inn á fyrir Jesse Lingard. Armeninn var ekki lengi að minna á sig og átti strax skot sem fór rétt framhjá marki Sunderland. Stuttu eftir það átti hann góða stungusendingu inn á Zlatan en Pickford varði mjög vel.

Embed from Getty Images

Juan Mata entist í 74 mínútur í þessum leik áður en hin hefðbundna Mataskipting kom. Martial kom inn á fyrir Mata og Mkhitaryan fór við það yfir á hægri kantinn. Pressa United þyngdist jafnt og þétt og ljóst að eitthvað varð undan að láta.

Það gerðist loks á 82. mínútu. Þá skilaði pressa United sér í því að Pogba vann boltann og brunaði fram völlinn. Zlatan gerði vel í að halda sér réttstæðum og fékk svo flotta stungusendingu frá Pogba og afgreiddi boltann snyrtilega í netið. Ekkert sem Pickford gat gert í þessu. Zlatan var greinilega búinn að lesa Pickford í markinu eftir markvörsluna stuttu áður. Pickford settist aftur og teygði út lappirnar en í þetta skiptið setti Zlatan boltann yfir löppina á markmanninum.

Embed from Getty Images

Eftir þetta velkomna annað mark tók Mourinho Herrera út af vellinum og setti Fellaini inn á. Því miður mátti enn heyra eitthvað um baul frá barnalega og óþroskaða hluta stuðningsmanna United en einhverjir brugðust við með því að syngja nafn Belgans. Flott hjá þeim.

Mkhitaryan hafði verið mjög sprækur eftir að hann kom inn á. Stuttu eftir að Fellaini kom inn á kórónaði Mkhitaryan góðan leik sinn með stórkostlegu marki. Zlatan átti þá sendingu utan af hægri kantinum inn á Mkhitaryan sem var kominn einn í gegn. Sendingin kom fyrir aftan Mkhitaryan sem tók þá bara hælspyrnu á lofti og stýrði boltanum þannig í markhornið fjær. Með flottari mörkum ársins. Hann var að vísu rangstæður í markinu en aðstoðardómarinn tímdi ekki að flagga svona flott mark af svo það stóð.

Embed from Getty Images

Leikurinn var löngu búinn en Sunderland náði aðeins að klóra í bakkann í uppbótartíma þegar Borini slummaði tuðrunni upp í skeytin. Algjör óþarfi að fá á sig þetta mark, það hefði verið sterkur leikur að halda hreinu og bæta markatöluna. En það var í sjálfu sér lítið hægt að gera við þessu, einfaldlega þrusuvel gert hjá Borini.

Sigur staðreynd, 3-1 fyrir Manchester United. 11 leikir án taps og 5 sigurleikir í röð. Þetta gleður.

Umræðupunktar

Minn maður leiksins í þessum leik er Paul Pogba. Hann var allt í öllu, alls staðar á vellinum. Það sást langar leiðir að hann ætlaði sér að skora í þessum leik, hann ætlaði sér að leiða liðið til sigurs. Honum tókst ekki að skora sjálfum en hann lagði upp mark og leiddi liðið svo sannarlega til sigurs.

Það sem þessi maður er góður í fótbolta. Og samt á hann ennþá fullt inni. Það er líka enginn efi í mínum huga um að við munum sjá Pogba bera fyrirliðabandið hjá United í ekki svo fjarlægri framtíð.

Zlatan var líka góður í þessum leik. Það er oft talað um að hann sé að klúðra mikið af færum. Hann átti 4 marktilraunir í þessum leik. Fyrsta tilraunin fór ekki á rammann. Tilraun númer 2 var mjög vel varin af Pickford. Tilraun númer 3 var mark. Fjórða tilraunin var svo alveg í lok leiksins, hana varði Pickford. Svo þetta er nú engin hræðileg tölfræði hjá Zlatan. Auk þessara marktækifæra þá bjó hann til 5 færi fyrir samherja og átti 2 stoðsendingar.

Með þessu marki er Zlatan kominn með 50 deildarmörk á árinu. Búinn á því? Ekki aldeilis!

Sem mikill stuðningsmaður Daley Blind þá fannst mér gaman að sjá hann fá tækifærið í liðinu. Hann átti fínan leik og skoraði mjög gott mark. Kollegi hans hægra megin átti þó betri dag, var mikið í boltanum, þaut upp og niður eftir hægri vængnum og varðist vel.

Henrikh Mkhitaryan! Hvað er hægt að segja eftir svona mark? Og bara þessa innkomu. Að vera að fá hann inn, í þessu stuði, á þessum tímapunkti leiktíðarinnar, er frábært. Lofar virkilega góðu.

Twitterhornið

Mourinho, Moyes, Giggs, Ferguson and Atkinson all at Old Trafford today. Five of last six United managers. Just need LVG to turn up.

— Rob Dawson (@RobDawsonMEN) December 26, 2016

Ryan Giggs also just arrived in the directors’ box and shook hands with an awestruck Bailly. #mufc

— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) December 26, 2016

🙏❤ pic.twitter.com/H78XZ9x4PO

— Wicky (@Wicknes007) December 26, 2016

Credit to Rojo for the goal. Was the man who brought the ball forward and played it into Ibrahimovic inside the area, creating space. #mufc

— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) December 26, 2016

Pogba er sturlaður leikmaður. Ekki reyna að segja mér annað. Á samt sem áður ennþá fullt inni. Hlakka til.

— Haukur Eyþórsson (@Haukur29) December 26, 2016

This is how I feel when I manage to put both contact lenses in without one falling or going inside out on my finger pic.twitter.com/BcSu6bmQDZ

— Nooruddean (@BeardedGenius) December 26, 2016

Manchester United’s top scorer last season was Martial with 17.

Top scorer this season is Ibra with 17. And it’s Christmas.

— Alex Shaw (@AlexShawESPN) December 26, 2016

Moyes elskar að tapa á Old Trafford.

— Birkir (@BirkirGudmundar) December 26, 2016

United have won 19 Premier League games on Boxing Day – no other team has more than 12 victories. pic.twitter.com/7Z9e5PNYHr

— SemperFiUnited (@SemperFiUnited) December 26, 2016

A rare victory at Old Trafford for Manchester United with David Moyes in the dugout.

— Gary Lineker (@GaryLineker) December 26, 2016

Efnisorð: byrjunarliðið Daley Blind Henrikh Mkhitaryan Leikskýrslur Paul Pogba Sunderland Zlatan Ibrahimovic 9

Reader Interactions

Comments

  1. Karl Gardars says

    26. desember, 2016 at 20:13

    Jólasokkur handa DM sem fór í monolog sálfræðihernað fyrir leik með fáránlegum fullyrðingum.
    Margir að eiga þrælfínan leik og skyldusigur (já, hann sagði skyldusigur!) í höfn. Gleðilega Hátíð!

  2. einar__ says

    26. desember, 2016 at 20:14

    Þetta mark frá Mkhitaryan.. vá! Zlatan með mark og 2 assist, þvílíkur kóngur. Magnað staðreynd að þessi 35 ára meistari sé kominn með 17 mörk nú þegar.

    Þvílík ‘endurkoma/innkoma’ sem hjá Mkhitaryan. Hann hlýtur að byrja svo á móti ‘Boro. Sammála með Pogba, hann var frábær í dag.

    5 sigrar í röð og liðið komið í bullandi baráttu um fjórða sem virtist nær útilokað fyrir 2 mánuðum.. fyndið að lesa þessa grein í Telegraph sem var skrifuð 9. nóv og mestu ‘flop’ kaup ársins listuð.. með Mkhitaryan í 1. og Pogba í 4. sætið :)

    http://www.telegraph.co.uk/football/2016/11/09/the-10-biggest-summer-signings-who-have-flattered-to-deceive-thi/

    Þetta var bara geggjað, ég ætla lofa mér að vera bjartsýnn fyrir leikinn á móti ‘Boro. Sýnd veiði en ekki gefin, þeir hafa náð jafnteflum í sínum útileikjum á móti City og Arsenal, svo þetta verður langt í frá auðveldur skyldusigur.

  3. Hjörtur says

    26. desember, 2016 at 23:08

    Ég er að velta því fyrir mér hvers vegna Mata fái aldrei að klára leiki. Var það ekki eins undir stjórn Móra hjá Chelsea?

  4. Dogsdieinhotcars says

    27. desember, 2016 at 02:13

    Skyldusigur, simple as. Allt annað hefði verið skandall.

    Langt síðan ég hef séð jafnfallegt mark í leik hjá United.

    Zlatan, Pogba og Carrick draga vagninn.

    Svo er algjör lúxus að geta tekið Mata og Lingard út til að koma Tony Martial og Miki inn.

  5. Dogsdieinhotcars says

    27. desember, 2016 at 04:51

    Skulum líka muna að að það var minn maður Rojo sem óð með boltann upp völlinn, hótaði skoti, gaf á Zlatan sem gaf á Blind: fyrsta markið í leiknum.

  6. Björn Friðgeir says

    27. desember, 2016 at 08:56

    Þetta var fallegt á allan hátt. Og mark ársins að auki. Liðið er komið á góðan skrið og nú er að halda þessu áfram, þá verður nýja árið gott. Liðið er farið að slípast saman allverulega og komnir fastamenn í flestar stöður.

    Eitt frá gamla: Öxl í öxl er líklega enn leyfilegt þannig að dæma ekki víti á „brotið“ á Mata sleppur, þó að vissulega hafi varnarmaðurinn farið beint í manninn án þess að hafa áhyggjur af boltanum.

  7. Ólafur Helgi says

    27. desember, 2016 at 13:38

    Skemmtilegur leikur og góður sigur, Jose Mourinho er á réttri leið með þetta lið.
    Með minniháttar fínpússningu þá verður þetta lið eitt það besta í Evrópu eftir ekki svo marga mánuði, hann hefur ótrúlegt magn af flottum leikmönnum sem eru á heimsmælikvarða, þarf smá fínpússningu með komu manna eins og Griezmann og mjög góðum DCM leikmanni.

    Takk fyrir @Halldór Marteins að vera á góðri leið með að skemma þessa síðu með þröngsýni.
    Þessi skrif þín um stuðningsmenn United gera það að verkum að fólk hættir að nenna að kíkja á svona einræðissíður.

  8. Halldór Marteins says

    27. desember, 2016 at 14:47

    Sæll Ólafur Helgi #7,

    takk fyrir þína ábendingu. Ég tek hana til greina varðandi það sem ég er að segja um þann hluta stuðningsmanna Manchester United sem ákveður að mæta á Old Trafford og baula á einn ákveðinn leikmann liðsins. Mér finnst það ekki í lagi en það er vissulega hægt að passa hvernig því er komið til skila. Vonandi hættir bara þetta baul svo við getum pælt í einhverju öðru.

    Annars vil ég benda á að það er ekkert einræði á þessari síðu. Í ritstjórn Rauðu djöflanna eru sjö einstaklingar. Við höfum okkar skoðanir sem við kvittum fyrir og tökum ábyrgð á. Það sem ég skrifa er ekkert endilega skoðun annarra ritstjórnarmeðlima né ætlast ég til að allir lesendur séu sammála. Raunar væri ljómandi fínt að fá oftar skemmtilegar samræður í kommentakerfinu þar sem fólk skiptist á skoðunum um Manchester United.

    Kveðja,
    Halldór Marteins

  9. Cantona no 7 says

    27. desember, 2016 at 18:06

    Flottur sigur.
    Vonandi heldur þetta áfram.
    G G M U

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress