• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Sagan

Pistlar Sagan

56 ár frá flugslysinu í München

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. febrúar, 2014 | 2 ummæli

Sjötta febrúar ár hvert minnumst við flugslyssins þar sem  8 leikmenn Manchester United, 3 starfsmenn félagsins og 12 aðrir létust.

Leikmennirnir voru Geoff Bent, Roger Byrne fyrirliði, Eddie Colman, Duncan Edwards, Mark Jones, David Pegg, Tommy Taylor og Liam Whelan.

Walter Crickmer, ritari félagsins, Bert Whalley yfirþjálfari og Tom Curry þjálfari létu einnig lífið.

  Lesa meira

Efnisorð: München 2
Pistlar Ritstjóraálit Sagan Stjórinn

Sumt af því besta, og versta, frá Ferguson árunum

Björn Friðgeir skrifaði þann 22. maí, 2013 | 5 ummæli

Það væri hægt að búa til 20 diska DVD safn af því besta, og versta, frá Ferguson árunum. Þess vegna er hér farin hin leiðin og ritstjórar kusu 5 bestu eða verstu í örfáum flokkum:

Bestu kaupin

1. Eric Cantona (5 atkvæði)

1. Cristiano Ronaldo (5 atkvæði)

1. Peter Schmeichel (5 atkvæði)

Allir ritstjórarnir sammála um að þessir kappar væru ein af fimm bestu kaupum Ferguson.

4. Roy Keane (3 atkvæði) Lesa meira

Efnisorð: Sir Alex Ferguson 5
Pistlar Sagan Stjórinn

Fæddur árið 17 f.F.

Björn Friðgeir skrifaði þann 16. maí, 2013 | 8 ummæli

Samkvæmt dagatalinu er ég sá eini af ritstjórninni sem man árin fyrir Fergie, enda fæddur 1969, 17 árum fyrir Ferguson. Ólíkt Ómari Ragnarssyni sem komst fram til átta ára aldurs í fyrsta bindi ævisögunnar, get ég hins vegar ekki sagt að ég sé minnugur á atburði. Ég veit það t.a.m. bara af því eldri frændur rifja það alltaf upp að fyrsta sem ég veit um að ég sé United maður er að ég á að hafa grenjað óhuggandi þegar United tapaði fyrir Southampton í bikarúrslitunum ’76. Annars man ég þetta ósköp lítið næstu árin. Maður horfði á útdrætti úr vikugömlum enskum leikjum á laugardögum, las um þetta í Mogga og fylgdist svolítið með. 1982 byrjaði ég að lesa Shoot! og fékk fagra mynd af öllum leikmönnum og liðum, enginn var lélegur, bara stundum smá vonbrigði. Sama ár komu fyrstu beinu útsendingarnar og um haustið byrjaði RÚV að sýna einn leik í viku. Lesa meira

Efnisorð: Sir Alex Ferguson 8
Meistaradeild Evrópu Sagan

Real Madrid á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 12. febrúar, 2013 | 17 ummæli

Real Madrid – Manchester United.

Real Madrid – Manchester United.

Real Madrid – Manchester United.

Þeir gerast ekki stærri og söguþrungnari leikirnir í Evrópukeppninni. Tvö stærstu lið álfunnar síðustu 60 árin leiða saman hesta sína enn á ný og gefa mér afsökun til að týnast í sögulegri upprifjun þar sem hver viðureignin var annarri stærri. Leyfið mér það og ég lofa að ég kemst á endanum í að fjalla um nútímann. Lesa meira

Efnisorð: Myndbönd Real Madrid Upphitun 17
Pistlar Sagan

Flugslysið í München 1958

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. febrúar, 2013 | 1 ummæli

Í dag eru liðin 55 ár frá flugslysinu í München þar sem 8 leikmenn Manchester United, 3 starfsmenn félagsins og 12 aðrir létust.

Leikmennirnir voru Geoff Bent, Roger Byrne fyrirliði, Eddie Colman, Duncan Edwards, Mark Jones, David Pegg, Tommy Taylor og Liam Whelan.

Walter Crickmer, ritari félagsins, Bert Whalley yfirþjálfari og Tom Curry þjálfari létu einnig lífið.

Nöfn þeirra munu lifa meðan knattpspyrna er leikin undir merkjum Manchester United og við minnumst þeirra með ljóði Eric Winter, The Flowers of Manchester. Lesa meira

Efnisorð: München 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress