• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Crystal Palace

Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace 0:0 Manchester United

Sigurjón skrifaði þann 31. október, 2015 | 22 ummæli

Enn eitt 0-0 jafntefli staðreynd í dag gegn annars spræku Crystal Palace liði, þetta er þriðja 0-0 jafnteflið í röð en ansi frábrugðið því fyrsta gegn Man City á Old Trafford. Þar var ákveðinn kraftur í liðinu, menn voru skipulagðir og duglegir í að loka á andstæðinginn. Vissulega var sóknaleikurinn ekkert sérlega glæsilegur þá, en það var nú mest megnis góðri vörn Man City að þakka. Í dag aftur á móti var heldur dapurlegra að horfa á liðið. Crystal Palace eru með asskoti gott lið, sérstaklega fram á við, en þeir eru langt frá því að vera með sterka varnarlínu. Í dag hinsvegar reyndi nákvmælega ekkert á vörn Palace því sóknarleikur United steindrapst um leið og liðið kom fram yfir miðju. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikskýrslur 22
Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace á Selhurst Park á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 30. október, 2015 | 3 ummæli

Það er Lundúnaferð í aðsigi fyrir United leikmenn. Næstu tveir mánuðir eru ef litið er á leikjaprógrammið með áratugafordómum „léttir“, aðeins Chelsea um jólin er leikur sem á að reynast United erfiður en ef nánar er að gáð þá eru ljón á veginum. Liðin í þriðja, fimmta og sjöunda sæti heita núna West Ham, Leicester og Crystal Palace en ekki Manchester City, Arsenal og Liverpool eins og á sama tíma í fyrra. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace 1:2 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. maí, 2015 | 13 ummæli

United vann gríðarlega mikilvægan sigur á Crystal Palace á útivelli í dag, 1-2 urðu lokatölur eftir nokkuð strembinn leik. Fyrir leik bárust þau tíðindi að Angel Di Maria hefði meiðst á æfingu í vikunni og Robin van Persie hefði orðið fórnarlamb hálsbólgunnar sem var að ganga hjá United í vikunni. Það var því ekki mikið svigrúm fyrir breytingar og var eftirfarandi liði stillt upp: Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikskýrslur 13
Enska úrvalsdeildin

Crystal Palace á Selhurst Park á morgun

Tryggvi Páll skrifaði þann 8. maí, 2015 | 6 ummæli

Í gær fengum við ansi skemmtileg sprengju þegar tilkynnt var að félagið hefði gengi frá kaupum á Memphis Depay frá PSV. Hann kemur í sumar og það er frábært að sjá hvað menn ætla sér að vera snemma í að ganga frá þessum málum, eitthvað sem menn hafa klárlega lært af síðustu tveimur sumrum. Næsta tímabil er því ofarlega í huga hjá stjórnarmönnum Manchester United en það þarf þó að klára tímabilið sem er í gangi áður en menn missa sig alveg í hugleiðingum um alla titlana sem United ætlar að vinna á næsta tímabili. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Upphitun 6
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Crystal Palace

Magnús Þór skrifaði þann 8. nóvember, 2014 | 8 ummæli

Mikið var talað um í aðdraganda leiksins að James Wilson myndi fá tækifæri til að byrja leikinn enda átt hann líflega innkomu í tapinu gegn Manchester City. Það varð ekki raunin. Einnig var talað um fátt annað en meiðsli Marcos Rojo og hvað það myndi þýða fyrir varnaruppstillinguna í leiknum og við myndum lenda í miklum vandræðum þar í dag. Það var heldur ekki raunin. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikskýrslur 8
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress