• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Runólfur Trausti

Enska úrvalsdeildin

Newcastle United heimsækir Old Trafford

Runólfur Trausti skrifaði þann 17. nóvember, 2017 | 3 ummæli

Loksins, loksins! 

Tilgangslausasta landsleikjahlé síðari ára, fyrir okkur Íslendinga allavega, er lokið og alvöru fótboltinn getur hafist á ný. Á morgun mætast tveir erkifjendur á hliðarlínunni en þeir Rafa Benitez og José Mourinho hafa eldað grátt silfur saman í meira en áratug. Þó svo að úrslitin ráðist inn á vellinum þá má reikna með harðri baráttu á hliðarlínunni. Lesa meira

Efnisorð: Newcastle United Rafael Benitez Upphitun 3
Meistaradeild Evrópu

Benfica 0:1 Manchester United

Runólfur Trausti skrifaði þann 18. október, 2017 | 4 ummæli

Ekki var það skemmtilegt en þrjú stig eru þrjú stig og um það snýst leikurinn. Enn og aftur heldur David De Gea hreinu og enn og aftur vinnur Manchester United knattspyrnuleik. Byrjunarliðið sem José Mourinho stillti upp kom lítið á óvart en hann sagði á blaðamannafundi fyrir leikinn að blaðamenn ættu að geta giskað á byrjunarliðið þar sem hópurinn væri svo þunnur vegna meiðsla. Mourinho gerði samt sem áður fjórar breytingar frá leiknum gegn Liverpool um helgina. Lesa meira

Efnisorð: Benfica Marcus Rashford Meistaradeild Evrópu 4
Meistaradeild Evrópu

United mættir til Portúgals: Benfica á morgun

Runólfur Trausti skrifaði þann 17. október, 2017 | 2 ummæli

Á morgun fá okkar menn kjörið tækifæri til þess að koma sér aftur á beinu brautina eftir Liverpool leik síðustu helgar en eins og flestir vita gerði United sitt annað jafntefli á leiktíðinni á Anfield í hádeginu á laugardaginn. Aftur gerði liðið jafntefli eftir landsleikjahlé en liðinu gekk einnig skelfilega í þeim leikjum á síðasta tímabili en 0-0 jafnteflið á Anfield kom einmitt eftir landsleikjahlé. Tapið gegn Manchester City, jafnteflin gegn Arsenal og W.B.A í fyrra: Allt saman leikir beint eftir landsleikjahlé. Það má vissulega sjá ákveðið mynstur hérna en að því sögðu þá er vonandi að liðið nái að hrista af sér slenið eftir næsta hlé. Lesa meira

Efnisorð: Benfica Upphitun 2
Pistlar

Féll José Mourinho á fyrsta prófi vetrarins?

Runólfur Trausti skrifaði þann 10. september, 2017 | 5 ummæli

Eins og flestir vita gerði Manchester United 2-2 jafntefli við Stoke City á Bri … Bet 365 vellinum í gær. Það er svo sem margt verra í þessum heimi en að knattspyrnulið í Englandi vinni ekki knattspyrnuleik en það er eitthvað við jafntefli gærdagsins sem situr í mér. Ég ætla að reyna fara yfir það hér að neðan. Eina jákvæða við þennan leik er að Darren Fletcher er fyrirliði Stoke City og hann á allt gott skilið. Ég samgleðst honum en pirra mig yfir öllu öðru varðandi þennan leik. Lesa meira

Efnisorð: Jose Mourinho Pirringur Stoke City 5
Yngri liðin

Hvað er að frétta af yngri liðunum – 1:2017/2018

Runólfur Trausti skrifaði þann 29. ágúst, 2017 | Engin ummæli

Nú þegar tímabilið er farið af stað hjá U23 ára liði félagsins er um að gera að skoða hvernig sumarið hefur gengið hjá bæði U23 og U18, hvaða leikmenn eru á láni hjá öðrum félögum og hverju má búast við í vetur. Hugmyndin er að vera með mánaðarlega uppfærslu í lok hvers mánaðar þar sem farið er yfir það helsta sem hefur gerst.

Eitt af því fyrsta sem United gerði í vetur var að ráða Ricky Sbragia aftur til liðsins en hann þjálfaði varaliðið, eins og það hét þá, á árunum 2002-2005. Síðan hefur hann þjálfað hjá Bolton Wanderers, Sunderland AFC og hjá skoska knattspyrnusambandinu. Nicky Butt verður áfram með yfirumsjón yfir yngri flokka starfi félagsins en hann er mjög sáttur með að fá Sbragia aftur til liðsins. Hann talaði sérstaklega um að Sbragia væri einstaklega fær í að þróa hæfileikaríka einstaklinga sem og hann væri auðvitað öllum hnútum kunnugur hjá Manchester United. Lesa meira

Efnisorð: Ricky Sbragia Yngri liðin 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6
  • Interim pages omitted …
  • Page 20
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress