• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Æfingaleikir

Æfingaleikir

Club América 0:1 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 18. júlí, 2015 | 9 ummæli

Manchester United vann fyrsta æfingaleik tímabilsins þegar liðið mætti Club America í Seattle. Fyrir leikinn voru helstu spurningarmerkin hvaða leikkerfi yrði fyrir valinu og hvar Memphis Depay og Adnan Januzaj myndi spila. Við fengum svör við þessu öllu saman í nótt.

Liðið sem spilaði fyrri hálfleik var svona, í einhverskonar 4-2-3-1/4-4-1-1

Johnstone
Shaw
Blind
Jones
Darmian
Schneiderlin
Carrick
Young
Depay
Mata
Rooney

David de Gea og Antonio Valencia voru ekki með vegna smávægilegra meiðsla. Memphis var í holunni rétt fyrir aftan Rooney en annað var tiltölulega hefðbundið. Lesa meira

Efnisorð: Club America Leikskýrslur Tour 2015 9
Æfingaleikir

Liðið klárt gegn Club Ameríca

Sigurjón skrifaði þann 18. júlí, 2015 | 2 ummæli

Byrjunarliðið sem Louis Van Gaal stillir upp gegn Club Ameríca er einhvern veginn svona:

Johnstone
Shaw
Jones
Blind
Darmian
Young
Schneiderlin
Carrick
Mata
Memphis
Rooney

Ég er ekki alveg klár á því hvort þetta verði sú taktík sem verði notuð, Carrick og Schneiderlin munu líklega spila aðeins aftar á miðjunni, og kannski mun Rooney spila einn upp á topp, með Mata í holunni og Young og Memphis á köntunum. Við sjáum til!

De Gea og Valencia eru víst smávægilega meiddir. Lesa meira

Efnisorð: Club America Tour 2015 2
Æfingaleikir

Club Ameríca í nótt

Tryggvi Páll skrifaði þann 17. júlí, 2015 | 4 ummæli

*MINNUM Á 12.ÞÁTT AF PODCASTI OKKAR SEM KOM ÚT Í GÆR*

Það eru rúmlega 50 dagar síðan leikur Hull og Manchester United var spilaður Það var síðasti leikur úrvalsdeildarinnar og síðan þá höfum við lesið endalausar greinar um leikmannakaup United og hvernig liðið gæti litið út þegar deildin hefst. Í nótt spilar liðið sinn fyrsta æfingaleik og þá getum við loksins farið að minnka umræðuna um leikmannakaup og farið að einbeita okkur að því sem er skemmtilegast. Knattspyrnan er mætt aftur. Lesa meira

Efnisorð: Club America Tour 2015 Upphitun 4
Æfingaleikir Pistlar

Æfingaferðalag United

Tryggvi Páll skrifaði þann 15. júlí, 2015 | 7 ummæli

For me the most important match is the first match of the Premier League. #

Þetta sagði Louis van Gaal fyrir skömmu og það er alveg á hreinu að nú snýst allt um það hjá Manchester United að félagið byrji nýtt tímabil eins vel og hægt er. Það gekk nefnilega ekki eins og skyldi síðasta ár og það kostaði okkur ýmislegt. Í fyrstu þremur leikjum síðasta tímabils fékk United einungis 2 stig. Það var þessi slæma byrjun sem kostaði okkur það að geta veitt Chelsea og City einhverja keppni um titilinn en frá og með 4. umferð fram í lok apríl var stigasöfnun Manchester United mjög sambærileg við liðin sem enduðu fyrir ofan okkur. Töpuðu stigin í upphafi tímabils reyndust því dýrkeypt. Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal Tour 2015 Upphitun 7
Æfingaleikir

Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna klár

Tryggvi Páll skrifaði þann 13. júlí, 2015 | 1 ummæli

Það var brjálað að gera hjá fjölmiðladeild United núna rétt eftir hádegi. Á rétt rúmum 10 mínútum dældu þeir út staðfestingum á Schneiderlin og Schweinsteiger auk þess sem að hópurinn sem fer til Bandaríkjanna í dag var tilkynntur. Hann lítur svona út:

Athygli vekur að Victor Valdes er ekki í hópnum. Menn hafa fremur gert ráð fyrir því að hann verði áfram hjá United en það er alls óvíst núna þegar ljóst er að hann fer ekki með í æfingarferðina. David de Gea er hinsvegar í flugvélinni og maður veltir því fyrir sér hvort að hann verði áfram þetta tímabilið og Valdes sé þá á útleið? Rafael er einnig ekki með en hann hefur sterklega verið orðaður við sölu til Galatasaray eða Roma. Angel di Maria og Marcos Rojo fá svo lengra frí en þeir fóru auðvitað alla leið í úrslitaleik Copa America. Lesa meira

Efnisorð: Tour 2015 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Interim pages omitted …
  • Page 12
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress