• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Deildarbikarinn

Djöflavarpið

87. þáttur – Látlaust og leiftrandi gegn Leeds

Magnús Þór skrifaði þann 21. desember, 2020 | 2 ummæli

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og ræddu leikina gegn Manchester City, Sheffield United og Leeds. Góð staða kvennaliðs United var einnig til umræðu ásamt Amad Diallo sem gengur til liðs við United í janúar sem og mótherjar United í Evrópudeildinni, Real Sociedad.

Djöflavarpið er í boði Adidas á Íslandi. Hægt er að nálgast vörur adidas á eftirtöldum stöðum:

Jói Útherji
Músík og sport
Adidas á Íslandi Lesa meira

Efnisorð: Deildarbikarinn Evrópudeildin Kvennaboltinn Leeds Manchester City Real Sociedad Sheffield United 2
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester City 0:1 Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 29. janúar, 2020 | 7 ummæli

Í kvöld fór fram síðari viðureign Manchesterliðanna í deildarbikarnum en brekkan var ansi brött eftir 1-3 tap á heimavelli. Ljóst var að United þurfi að eiga frábæran leik til að eiga möguleika á að snúa við taflinu en Ole Gunnar Solskjær gat því miður ekki stillt upp sínu sterkasta liði. Hann stillti því upp í 5-3-2 með Luke Shaw í þriggja manna miðvarðarlínu og Williams og Wan-Bissaka í vængbakvarðarstöðum en þó líklega aftar á vellinum en gegn Tranmere um helgina. Lesa meira

Efnisorð: Deildarbikarinn Manchester City Pep Guardiola 7
Enska deildarbikarkeppnin

Bikarævintýri eða bikarOUT?

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 24. september, 2019 | 1 ummæli

Ný vika – Ný áskorun

Eftir hreint út sagt hroðalega frammistöðu um síðustu helgi í deildinni er komið að fyrsta leik Manchester United í Carabao bikarnum. Deildarbikarnum fylgja yfirleitt óvænt úrslit og mikil dramatík en keppnin er gjarnan nýtt af stóru liðunum til að leyfa ungu og efnilegu pjökkunum að spreyta sig á erfiðari andstæðingum en þeir eru vanir.

United hefur hins vegar flesta sína ungu og efnilegu leikmenn í hópnum nú þegar og þeir byrja ekki inn á í leikjum, verma þeir bekkinn. Hópurinn er einfaldlega það þunnur að við megu ekki við því að fá fleiri á meiðslalistann og ungu leikmennirnir þurfa að vera klárir í deildarleiki. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Brandon Williams Deildarbikarinn Marcus Rashford Mason Greenwood Ole Gunnar Solskjær Rochdale A.F.C. 1
Enska deildarbikarkeppnin

Bristol City 2:1 Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 20. desember, 2017 | 11 ummæli

Í kvöld tók Bristol City á móti okkar mönnum í United á Ashton Gate Stadium í síðasta leik 8-liða úrslita deildarbikarsins. Zlatan Ibrahimovic, Anthony Martial og Marcus Rashford byrjuðu allir inn á og ef það eitt og sér var ekki nóg til að knattspyrnuáhugamenn fái vatn í munninn þá veit ég ekki hvað. Stemmingin á vellinum var vægast sagt alvöru bikarstemmning og gífurlega spennandi kvöld. United spilaði í gráu varavarabúningunum í kvöld en eins og eldri stuðningsmenn muna eftir þá hefur grái liturinn ekki alltaf verið sú heilladís sem hönnuðir búninganna hafa vonast eftir. Kvöldið í kvöld var ekki undantekning á reglunni. Lesa meira

Efnisorð: bristolcity Deildarbikarinn 11
Enska deildarbikarkeppnin

Bristol City býður í bikarveislu

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 19. desember, 2017 | 1 ummæli

Á morgun ferðast Manchester United til Bristol þar sem landsliðsmaðurinn Hörður Magnússon og félagar í Bristol City F.C. taka á móti okkur í 8-liða úrslitum Carabao deildarbikarsins. Nú fer leikjaálagið að þyngjast í kringum hátíðirnar en United á nánast leik á þriggja daga fresti út mánuðinn og því liggur í augum uppi að José Mourinho þarf að vera duglegur að gera breytingar á liðinu milli leika. Lesa meira

Efnisorð: Deildarbikarinn Upphitun 1
  • Go to page 1
  • Go to page 2
  • Go to page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Dór um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Tony D um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Sindri um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Scaltastic um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • SHS um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress