• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Ole Gunnar Solskjær

Djöflavarpið

106. þáttur – Solskjær kveður. Hvað tekur við?

Magnús Þór skrifaði þann 21. nóvember, 2021 | 2 ummæli

Maggi, Bjössi og Danni settust niður og fóru yfir stórtíðindi dagsins. Ole Gunnar Solskjær var sagt upp í dag og við ræddum málin í þaula. Hver tekur við út tímabilið? Hver kemur í sumar?

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan, auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Ed Woodward Erik ten Hag Mauricio Pochettino Michael Carrick Ole Gunnar Solskjær 2
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:1 Everton

Þorsteinn Hjálmsson skrifaði þann 2. október, 2021 | 16 ummæli

Sennilega sanngjarnt 1-1 jafntefli í fjörugum leik í dag þar sem United komst yfir. En ekki góð úrslit fyrir okkar menn þar sem töpuð stig gegn minni liðum eru dýrkeypt í þeirri baráttu sem er framundan á tímabilinu á toppi deildarinnar.

Það má segja að Ole Gunnar hafi stillt upp óvæntu liði fram á við í dag. Ronaldo og Pogba fóru á bekkinn. Cavani kom inn í framlínuna og mjög svo óvæntur Martial fékk að byrja. Shaw hefur náð sér af meiðslunum og var settur strax inn í liðið á kostnað Telles. Öryggisteppið var svo mætt á miðjuna, McFred. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Everton Ole Gunnar Solskjær 16
Enska úrvalsdeildin

Jadon Malik Sancho er orðinn leikmaður Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 2. júlí, 2021 | 5 ummæli

Þá er það loksins komið á hreint, eltingaleiknum og orðrómunum er lokið. Jadon Malik Sancho er orðinn nýjasti meðlimur United fjölskyldunnar. Eftir látlausan orðróm og fréttaflutning svo mánuðum skiptir í einni lengstu og leiðinlegustu sögu liðsins þegar kemur að leikmannakaupum og misheppaða tilraun til að ná samkomulagi við Dortmund á síðasta ári er englendingurinn knái loksins búinn að skrifa undir saming til ársins 2026. Lesa meira

Efnisorð: Jadon Sancho Ole Gunnar Solskjær 5
Evrópudeildin

Villarreal 1:1 Manchester United – tap í vítaspyrnukeppni

Halldór Marteins skrifaði þann 26. maí, 2021 | 36 ummæli

Lokaleikur tímabilsins sendir Manchester United fólk með óbragð inn í sumarið eftir tap í framlengdum úrslitaleik Evrópudeildarinnar og maraþonvítaspyrnukeppni. Á endanum var það David de Gea, maðurinn sem um tíma hélt liðinu uppi, sem var skúrkurinn. En hann á svo sannarlega ekki skilið að skuldinni sé alfarið skellt á hann. Frammistaða liðsins var heilt yfir ekki nógu góð, of margir leikmenn spiluðu undir getu og skorti baráttu og þjálfarateymið var ekki með réttu svörin í kvöld til að vinna lið sem er ekki betra en Manchester United en hefur, að því er virðist, töluvert betri knattspyrnustjóra. Lesa meira

Efnisorð: David de Gea Edinson Cavani Ole Gunnar Solskjær 36
Ritstjóraálit

Tvö ár Solskjær

Zunderman skrifaði þann 18. janúar, 2021 | 4 ummæli

Í desember voru tvö ár liðin frá því Ole Gunnar Solskjær tók fyrst við Manchester United, daginn eftir að José Mourinho var rekinn. Með leiknum gegn Burnley voru búnir 17 leikir, jafnmargir og þegar Mourinho hætti. Og næsti andstæðingur, Liverpool var sá síðasti hjá Portúgalanum. Staðan nú er hins vegar að United fer inn í helgina í efsta sæti meðan liðið var í því sjötta þegar loks var komið nóg hjá Jose. Lesa meira

Efnisorð: Ole Gunnar Solskjær 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Interim pages omitted …
  • Page 9
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress