• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Meistaradeild Evrópu

Meistaradeild Evrópu

Meistaradeildin heldur áfram að rúlla

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 3. nóvember, 2020 | Engin ummæli

Þá er komið að þriðju umferð í H riðli Meistaradeildarinnar þar sem tyrknesku meistararnir í Istanbul Başakşehir taka á móti Rauðu djöflunum heima í Tyrklandi. United trónir á toppi riðilsins með fullt hús stiga og +6 í markatölu eftir glæsilega sigra á PSG og RB Leipzig en Meistaradeildin virðist vera eini vígvöllurinn sem hentar United þessa stundina. Mótherjinn er sá sem á pappír gæti virst auðveldasta viðureignin en það hafa einmitt reynst erfiðustu bitarnir fyrir Ole Gunnar Solskjær og hans menn. Hvort þeim norska reynist erfitt að peppa menn upp í minni leikina eða leikmenn einfaldlega séu að ofmetnast/vanmeta andstæðinginn er álitamál en hitt er næsta öruggt að enginn leikur getur lengur talist skyldusigur fyrir United eins og liðið er að spila í dag. Lesa meira

Efnisorð: Istanbul Başakşehir Meistaradeild Evrópu Ole Gunnar Solskjær 0
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 5:0 RB Leipzig

Daníel Smári skrifaði þann 28. október, 2020 | 18 ummæli

Manchester United vann stórkostlegan 5-0 sigur á RB Leipzig í öðrum leik H-riðils, í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Marcus Rashford kom inná um miðbik seinni hálfleiks og skoraði þrennu í fyrsta sinn á ferli sínum hjá United. Magnað!

1
De Gea
3
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
31
Matic
6
Pogba
17
Fred
34
van de Beek
11
Greenwood
9
Martial

Bekkur: Henderson, Fosu-Mensah, Mengi, Tuanzebe 81′, Williams, Fernandes 68′, James, Mata, McTominay 63′, Cavani 81′, Ighalo, Rashford 63′ Lesa meira

18
Meistaradeild Evrópu

Manchester United mætir RB Leipzig í fyrsta sinn

Daníel Smári skrifaði þann 27. október, 2020 | 1 ummæli

Það gerist æ sjaldnar að Manchester United bjóði nýja gesti velkomna í Leikhús draumanna, en sú er þó raunin þegar liðið fær þýska liðið RasenBallsport Leipzig e.V., eða einfaldlega RB Leipzig í heimsókn. Ástæðan er margþætt, en helsta ástæðan kannski þó sú að gestaliðið er ekki nema 11 ára gamalt! Félagið var stofnað 2009 og hefur upprisa liðsins verið hröð síðan þá. Svo hröð að liðið komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, en laut þar í lægra haldi fyrir uppáhalds fórnarlömbum okkar – Paris Saint Germain. Lesa meira

Efnisorð: Meistaradeild Evrópu Upphitun 1
Meistaradeild Evrópu

PSG 1:2 Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 20. október, 2020 | 19 ummæli

Gestgjafarnir í París pöntuðu Manchesterborgar rigningu fyrir Meistaradeildarkvöldið í kvöld til að gestunum frá United liði eins og heima hjá sér. Þar að auki klæddist United hinni umdeildu þriðju treyju liðsins, sem minnir óneitanlega á zebrahesta, í fyrsta skiptið í keppnisleik og það var eins og það væri skrifað í skýin að kvöldið yrði á einhvern hátt eftirminnilegt. Lesa meira

19
Meistaradeild Evrópu

PSG annað kvöld

Magnús Þór skrifaði þann 19. október, 2020 | 1 ummæli

Annað kvöld hefst riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United snýr aftur eftir árs fjarveru. Síðasti sigurleikur United í Meistaradeildinni kom einmitt á Parc des Princes en þar fer viðureign liðanna fram annað kvöld.

PSG

Paris Saint-Germain  byrjaði tímabilið heima fyrir frekar brösluglega. Liðið byrjaði með ósannfærandi töpum en hefur verið að koma til og hefur unnið 5 leiki í röð og situr í 2. sæti Ligue 1. PSG hefur ekki bara verið verið óheppið með meiðsli leikmanna heldur voru líka að koma upp Covid smit í hópnum. Síðasti leikur liðsins var sannfærandi 0:4 sigur á Nimes á útivelli. Lesa meira

Efnisorð: Meistaradeild Evrópu PSG Upphitun 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 5
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Interim pages omitted …
  • Page 31
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress