Eftir fína byrjun í janúarmánuði kom brotlendingin gegn Tottenham. Sá leikur sýndi nákvæmlega hvaða veikleika þetta lið hefur og er núna augljóst hvers vegna United er á eftir miðverði og miðjumanni. Þessi leikur var ákveðið „reality check“ en liðið var gjörsamlega yfirspilað og hefði alveg getað tapað með mun meiri mun og það hefði alls ekki verið ósanngjarnt. Liðið varð fyrir blóðtöku í þessum leik en Marouane Fellaini sem kom inná sem varamaður fór fljótlega meiddur af velli og verður frá í allt að tvo mánuði.
Eftir tap eins og þetta þá ætti það að vera kærkomið að fá heimaleik gegn nýliðum. Það reyndar ekki gleymast að Huddersfield vann síðustu viðureign þessara liða 2:1 í einum af verri leikjum United á tímabilinu. Eins og í Tottenham leiknum mætti liðið óundirbúið og andlaust til leiks en það er alls ekki í boði núna. Það á að bera virðingu fyrir andstæðingnum og allt það en þessi leikur á einfaldlega að vinnast örugglega. Eina leiðin til að svara drullunni í vikunni er einfaldlega að vinna næsta örugglega og ef það gerist ekki þá er einfaldlega eitthvað mikið að.
Huddersfield eru ekkert í alltof góðum málum í deildinni en liðið situr í 17.sæti og er einungis einu stigi frá fallsæti. Liðið hefur átt ágætis tilþrif en hafa einungis unnið 6 leiki af 25. Síðasti sigur Huddersfield í úrvalsdeildinni var 1:4 sigur gegn Watford. Miðjumaðurinn Danny Williams er tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla en verður mögulega klár. Hins vegar verður liðið án þeirra Scott Malone, Elias Kachunga og Jon Stankovic.
United verður án Daley Blind, Fellaini, Zlatan Ibrahimovic og Eric Bailly. Ég vil sjá Mourinho spila 4-3-3 í þessum leik og droppa Jones, Matic og Jones á bekkinn. En ég vil sjá þetta nokkurn veginn svona: