• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Romelu Lukaku

Enska úrvalsdeildin

Manchester Utd 2:2 Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 29. janúar, 2019 | 21 ummæli

Leikurinn

Það hlaut að koma að því að þessi sigurhrina myndi enda. En einhvern veginn bjóst maður vikki við því að það myndi gerast gegn Burnley á Old Trafford. Leikurinn sýndi að það er enn ansi langt í land þó svo að margt hafi lagast heilmikið. Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður og átti Marcus Rashford að skora í upplögðu færi en á einhvern ótrúlegan hátt tókst það ekki. Það hjálpaði heldur ekki neitt að Anthony Martial hafði meiðst aðeins fyrir leikinn og þurfti því að gera breytingu á sóknarleiknum sem virkaði bara alls ekki. Tom Heaton varði svo þessi fáu skot sem rötuðu á rammann. Burnley komust yfir snemma í seinni hálfleik með marki frá Ashley Barnes eftir mistaka kokteil hjá United þar sem Andreas Pereira átti mesta sökina. Ole tók sinn tíma að gera breytingar en það voru þeir Pereira og Romelu Lukaku sem voru teknir af velli en Jesse Lingard og Alexis Sánchez leystu þá af hólmi. Heimamenn pressuðu stöðugt en bjuggu ekki til nógu mikið af færum. Chris Wood kom svo Burnley í 0:2 á 83. mínútu og aftur var varnarmistökum um að kenna. Þetta stefndi í að ætla að vera einstaklega svekkjandi kvöld og dæmigert fyrir tímabilið í heild. United fékk vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar og skoraði Paul Pogba örugglega framhjá Heaton sem á alltaf leik lífs síns í þessum viðureignum. Dómarinn bætti svo við 5 mínútum af „Ólatíma“ og vaknaði smá von um að hægt væri að bjarga kvöldinu. Það gerðist svo á 92. mínútu þegar Victor Lindelöf skoraði eftir frákast en Heaton hafði varið mjög vel og boltinn hrokkið til Svíans sem gerði allt rétt. Niðurstaðan 2:2 jafntefli og Solskær enn ósigraður. Lesa meira

Efnisorð: Andreas Pereira Burnley Leikskýrslur Paul Pogba Romelu Lukaku Victor Lindelöf 21
Enska bikarkeppnin

Arsenal 1-3 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 25. janúar, 2019 | 16 ummæli

Ef þessi sami bikarleikur hefði verið settur á fyrir 6 vikum síðan þá hefði maður líklega upplifað miklu meira stress en spennu fyrir leik og sennilega óskað eftir því að skemmtanastigið í leiknum yrði við frostmark því þar lægju helst möguleikar Manchester United til að fá eitthvað út úr þessum leik. Ó, hve mikil breyting hefur orðið á ekki lengri tíma. Núna beið undirritaður óþreyjufullur alla vikuna eftir leiknum, hlakkaði mikið til að sjá hvernig liðið yrði og var verulega bjartsýnn bæði á að leikurinn gæti orðið skemmtilegur áhorfs og að það myndi einmitt þýða að Manchester United ætti góðan séns á að halda sigurgöngu sinni áfram. Enda gekk það líka eftir! Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Anthony Martial Arsenal Emirates Jesse Lingard Ole Gunnar Solskjær Paul Pogba Romelu Lukaku 16
Djöflavarpið

Djöflavarpið 68. þáttur – United, hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?

Magnús Þór skrifaði þann 17. desember, 2018 | 6 ummæli

Maggi, Halldór, Friðrik og Björn settust niður og ræddu tapið gegn Liverpool og hvert framhaldið verði. Svo tókum við líka spurningar frá ykkur.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: David de Gea Ed Woodward Glazers Jose Mourinho Kvennaliðið Liverpool Nemanja Matic Nicky Butt Paul Pogba Romelu Lukaku U-18 6
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:1 Fulham

Magnús Þór skrifaði þann 8. desember, 2018 | 11 ummæli

Síðast þegar þessi tvö lið mættust á þessum velli vöru úrslitin ekki uppá marga fiska og undirritaður einnig á þeirri skýrslu. Þau úrslit voru kornið sem fyllti mælinn hjá stuðningsmönnum United sem vildu leyfa David Moyes að fá tíma til að gera eitthvað af viti. Þetta var einmitt alræmdi fyrirgjafaleikurinn.

Embed from Getty Images Lesa meira

Efnisorð: Ashley Young Fulham Juan Mata Leikskýrsla Liðsuppstilling Marcus Rashford Romelu Lukaku 11
Enska úrvalsdeildin

Southampton 2:2 Manchester United

Runólfur Trausti skrifaði þann 1. desember, 2018 | 11 ummæli

Byrjunarlið United kom vægast sagt á óvart í dag en José Mourinho ákvað að fara í fimm manna varnarlínu með þá Nemanja Matic og Scott McTominay í miðverði ásamt Phil Jones. Vakti þetta litla lukku meðal stuðningsmanna liðsins enda með eindæmum varnarsinnuð uppstilling gegn liði á borð við Southampton.

Ertu ekki að grínast með uppstillinguna? Getur einhver sagt mér hvort að Eric Bailly sé látinn, með ebola eða bara í frystikistunni? Þetta gæti (vonandi) orðið síðasti naglinn í kistu Jose. Lesa meira

Efnisorð: Marcus Rashford Romelu Lukaku Southampton 11
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Interim pages omitted …
  • Page 10
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress