• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Romelu Lukaku

Pistlar

Góð byrjun heldur áfram, meira samhengi

Halldór Marteins skrifaði þann 5. október, 2017 | 6 ummæli

Aftur er dagskráin hjá Manchester United trufluð af landsleikjahléi. Í þetta skiptið fengum við þó fleiri leiki fyrir hlé og áfram heldur hin góða byrjun Manchester United á þessu tímabili. Tveir flottir sigrar í Meistaradeildinni, öflug frammistaða í deildarbikarnum og svo lítur deildin svona út:

Eins og kom fram í sambærilegum pistli mínum fyrir mánuði síðan þá segir góður árangur í byrjun tímabils alls ekki alltaf fyrir um hvernig tímabilið spilast í heild sinni. En að sama skapi þá vitum við að José Mourinho elskar að byrja vel. Ég ætla aðeins að halda áfram að setja upphaf þessa tímabils í samhengi en þó með töluvert öðruvísi áherslum en síðast. Lesa meira

Efnisorð: Enska úrvalsdeildin Romelu Lukaku Tölfræði 6
Djöflavarpið

Djöflavarpið 43. þáttur – Fellaini arftaki Pauls Pogba?

Magnús Þór skrifaði þann 21. september, 2017 | 6 ummæli

Maggi, Björn, Kristófer og Halldór settust niður og fóru vel yfir síðustu leiki United. Einnig var komið inná meiðslin hjá Paul Pogba og leikina framundan.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:

Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum Lesa meira

Efnisorð: Andreas Pereira Anthony Martial Deildarbikarinn Jose Mourinho Liverpool Marouane Fellaini Meistaradeild Paul Pogba Romelu Lukaku 6
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 Leicester City

Halldór Marteins skrifaði þann 26. ágúst, 2017 | 19 ummæli

Þrír leikir í deildinni, þrír sigrar. 10 mörk skoruð, ekkert fengið á sig. Það er alveg óhætt að segja að Manchester United hefji þetta leiktímabil afskaplega vel. Framundan er landsleikjahlé, lok sumargluggans og svo septembermánuður fullur af leikjum í þremur mismunandi keppnum. Við erum ekkert að hata þetta!

Það var ein breyting á liðinu sem hóf leik í dag. Martial hafði komið gríðarlega sterkur inn af bekknum í síðustu leikjum og fékk að byrja þennan leik. Rashford hafði staðið sig nokkuð vel líka en hann þurfti að sýna að hann getur líka verið hættulegt vopn af bekknum. Byrjunarliðið í dag var svona: Lesa meira

Efnisorð: Henrikh Mkhitaryan Leicester City Marcus Rashford Marouane Fellaini Old Trafford Romelu Lukaku 19
Enska úrvalsdeildin

Leicester City mætir á Old Trafford

Magnús Þór skrifaði þann 25. ágúst, 2017 | Engin ummæli

Eftir stóra sigra heima og að heiman er röðin komin að næsta verkefni þegar Leicester City kemur í heimsókn. Bæði lið hafa verið að skora mörk en United ívið fleiri og hefur einnig haldið hreinu í sínum leikjum. Leicester spilaði opnunarleik tímabilsins gegn Arsenal sem var fínasta skemmtun með slatta af mörkum og dramatík fyrir allan peninginn. Á endanum fór Arsenal með sigur af hólmi en Leicester átti meira skilið en ekkert úr þeim leik. Í næstu umferð tók Leicester á móti nýliðum Brighton & Hove Albion og sigraði liðið þann leik með tveimur mörkum gegn engu. Á þriðjudaginn mætti Leicester svo Sheffield United á Bramall Lane og sigraði heimaliðið með fjórum mörkum gegn einu. Um var að ræða aðra umferð EFL bikarsins sem er núna kallaður Carabao bikarinn. Lesa meira

Efnisorð: Eric Bailly Henrikh Mkhitaryan Nemanja Matic Paul Pogba Phil Jones Romelu Lukaku Upphitun Zlatan Ibrahimovic 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 42. þáttur – Zlatan snýr aftur

Magnús Þór skrifaði þann 20. ágúst, 2017 | 1 ummæli

Maggi, Björn og Halldór settust niður og ræddu stórsigrana gegn West Ham og Swansea. Einnig var komið inná endurkomu Zlatan Ibrahimovic sem gæti jafnvel gerst í þessari viku. Svo svöruðu þeir spurningunni hvort einhver leikmaður muni bætast í hópinn í þessum glugga.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Andreas Pereira Anthony Martial Daley Blind Henrikh Mkhitaryan Ivan Perisic Marcus Rashford Marouane Fellaini Nemanja Matic Paul Pogba Phil Jones Romelu Lukaku Slúður 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 6
  • Page 7
  • Page 8
  • Page 9
  • Page 10
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress