• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

David Moyes

Ritstjóraálit

Keppnistímabilið 2013-14 – Spekingar spá

Björn Friðgeir skrifaði þann 16. ágúst, 2013 | 4 ummæli

Loksins, loksins er komið að því að alvaran fari af stað og við fáum eitthvað til að dreifa athyglinni frá endlausum þönkum um hvort við fáum nú ekki almennilegan miðjumann.

Rauðu pennarnir hafa spáð í spilin og hver fyrir sig komist að niðurstöðu um hvað tímabilið ber í skauti sér

Elvar Örn

Spennandi. Það verður ekki annað sagt að þetta tímabil verður afskaplega spennandi. Nýtt tímabil, nýtt gras, nýr Zaha og síðast en ekki síst nýr stjóri. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Spá 4
Æfingaleikir Slúður

Með sunnudagssteikinni

Björn Friðgeir skrifaði þann 14. júlí, 2013 | 6 ummæli

Fyrsti leikur United undir stjórn David Moyes fór fram í gær. Liðið keppti við úrvalslið tælensku deildarinnar sem kenndi sig við ódáinsmjöðinn Singha.

Liðið stillti upp í 4-5-1, eða 4-2-3-1 svo:

Amos

Fabio Ferdinand Evans Büttner

Carrick Cleverley

Januzaj Anderson Giggs

Welbeck

Büttner meiddist í fyrri hálfleik þannig að Rafael kom inn á og tvíburarnir spiluðu síðan í síðum stöðum. Í seinni hálfleik komu Jones, Lingard og Zaha inn á fyrir Giggs, Cleverley og Anderson og loks Evra fyrir Fabio. Lesa meira

Efnisorð: Adnan Januzaj Ben Amos Danny Welbeck David Moyes Fabio Leikskýrslur Singha XI Tour 2013 Wilfried Zaha 6
Stjórinn

Fyrsti blaðamannafundur Moyes

Magnús Þór skrifaði þann 5. júlí, 2013 | 6 ummæli

Wayne Rooney verður ekki seldur og hefur verið að æfa vel að sögn Moyes.

Moyes segir að Manchester United muni alltaf hafa áhuga á bestu leikmönnunum, hann muni kaupa unga og efnilega leikmenn og vilji jafnframt nota uppalda leikmenn.

Nemanja Vidic segir Wayne Rooney vera í besta forminu í 5 ár og hlakkar til að spila með honum.

Ashley Young, Chris Smalling og Nani eru tæpir vegna meiðsla fyrir æfingartúrinn, Kagawa mun væntanlega hitta liðið í Japan. Javier Hernandez mun ekki fara í túrinn en mun æfa í Carrington AON Training Center. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes 6
Slúður Stjórinn

Þjálfararáðningar og annað

Björn Friðgeir skrifaði þann 4. júlí, 2013 | 2 ummæli

Í dag gengu tveir nýir þjálfarar til liðs við United. Ólíkt síðustu nýliðunum í þjálfarateyminu er algerlega óþarft að kynna þessa menn eitthvað frekar

[one_half]

[/one_half]

[one_half_last]

[/one_half_last]

Að auki er Robbie Cooke kominn frá Everton, hvað annað, til að taka við stöðu yfirspæjara.

Í gær var staðfest öllum að óvörum að Mats Møller Dæhlie, einn af efnilegri leikmönnum unglingaliðsins hefði gengið til liðs við Ole Gunnar Solskjær hjá Molde. Nokkur missir að honum úr unglingastarfinu en ekki virðist ljóst hvers vegna  hann snýr heim, hvort honum finnist hann ekki ná framförum eða einfaldlega sé haldinn heimþrá. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Mats Møller Dæhlie Phil Neville Robbie Cooke Ryan Giggs Thiago Alcántara 2
Opin umræða Pistlar Slúður Stjórinn

Moyes sestur í stólinn

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. júlí, 2013 | 5 ummæli

Í gærmorgun mætti David Moyes ferskur til vinnu á Carringt… fyrirgefið AON Training Complex æfingavöllinn sem framkvæmdastjóri Manchester United. Það fyrsta sem gert var, var að staðfesta ráðningu Steve Round sem aðstoðarframkvæmdastjóra, Jimmy Lumsden sem þjálfara og Chris Woods sem markmannsþjálfara.

Við þessu hafði verið búist eins og við fórum yfir í lok maí, nema þá var ekki minnst á Lumsden. Hann er 65 ára gamall Skoti sem þjálfað hefur víða. Hann uppgötvaði Moyes sem leikmann hjá Celtic en varð síðar þjálfari hjá Moyes þegar Moyes tók við Preston North End og hefur fylgt honum síðan. Hann virðist samt ekki nógu hátt skrifaður til að fá stafina sína á treyjuna á myndinni hér að neðan. Kannske það lagist. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Ezequiel Garay Jimmy Lumsden Kevin Strootman Steve Round Thiago Alcántara 5
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress