• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Swansea City

Djöflavarpið

Djöflavarpið 51.þáttur – Swansea, Man City og Anthony Martial

Magnús Þór skrifaði þann 12. apríl, 2018 | 5 ummæli

Maggi, Tryggvi, Runólfur og Halldór  settust niður  og fóru yfir leikina gegn Swansea og Manchester City. Orðrómurinn um brottför Anthony Martial var einnig ræddur.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Anthony Martial Ashley Young David de Gea Jose Mourinho Manchester City Paul Pogba Pep Guardiola Swansea City 5
Enska úrvalsdeildin

Loksins loksins var farið á leik á Old Trafford – Ferðasaga

Runólfur Trausti skrifaði þann 5. apríl, 2018 | Engin ummæli

Fyrir páskahelgina sem var að enda þá hafði undirritaður aðeins séð Manchester United spila einu sinni og var það í Lundúnum er liðið vann Fulham 1-0 þökk sé marki Wayne Rooney eftir stórbrotnar markvörslur David De Gea. Einnig hafði hann aðeins einu sinni komið á Old Trafford en það var í skoðunarferð sumarið 2005. Því var breytt um páskana 2018.

Leiðin á Old Trafford

Það var eflaust í september á síðasta ári þegar einn af ritsjórum síðunnar ákvað ásamt þremur félögum sínum að nú loksins væri kominn tími til að sjá Manchester United spila á Old Trafford. Eflaust hefðum við farið fyrr í vetur en undirritaður ásamt einum af félögunum ákváðu að reyna finna helgi þar sem þeir gætu séð sín lið í neðri deildunum á Englandi spila líka. Þannig var það ákveðið að páskahelgin 2018 yrði yrði fyrir valinu. Stefnt var að því að sjá Peterborough United heimsækja Rotherham United á föstudeginum langa, á laugardeginum var förinni heitið í Leikhús Draumanna að sjá heimamenn etja kappi við Swansea City og að lokum var farið til Lundúna að sjá Dagenham&Redbridge keppa við lið sem ég einfaldlega man ekki hvað heitir. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Ferðasaga Old Trafford Romelu Lukaku Swansea City 0
Enska úrvalsdeildin

Swansea á morgun: Hvað gera Gylfalausir Svanir

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. ágúst, 2017 | 3 ummæli

Í hádeginu morgun er það ferð til Wales sem er á dagskránni. Í fyrradag lauk einni af lengstu sölusögum sumarsins og þeirri sem Íslendingar fylgdust mest með þegar Swansea seldi sinn besta mann, Gylfa Sigurðsson, fyrir 45 milljónir punda til Everton. Þeir hafa augljóslega ekki náð að koma þeim peningum í lóg og verða því veikari en ella gegn United.

Gylfi hefur verið duglegur að skora gegn liðinu sem hann heldur með og um tíma gekk Swansea mjög vel gegn United, unnu þrjá leiki í röð 2014 og 2015 en síðan unnust tveir. Leikurinn í vor var hins vegar enn eitt jafnteflið á jafnteflisvetrinum mikla og það var auðvitað Gylfi sem skoraði mark Swansea.
Embed from Getty Images
Það er ekki bara Gylfi sem verður ekki í liði Swansea á morgun, heldur eru Fernando Llorente, Ki Sung-Yeung og Nathan Dyer líka frá vegna meiðsla. Það verður því 19 ára lánsmaðurinn frá Chelsea, Tammy Abraham sem verður fremsti maðurinn í víglínu Swansea. Eini maðurinn sem þeir hafa bætt við sig að ráði er Roque Mesa, 28 ára miðjumaður frá Spáni sem var ekki með í fyrsta leik Swansea, dræmu 0-0 jafntefli gegn Southampton á St Mary’s. Búast má við Swansea óbreyttu úr þeim leik, og því er þetta sams konar lið og rétt slapp við fall í fyrra, að Abraham frátöldum. Reyndar gekk Swansea þokkalega í síðustu upphitunarleikjunum, unnu B-deildarlið Birmingham 2-0 og síðan Sampdoria auðveldlega 4-0. Lesa meira

Efnisorð: Swansea City Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Swansea City 1:3 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 6. nóvember, 2016 | 27 ummæli

Það voru margir stuðningsmenn búnir að kalla eftir breytingum á byrjunarliði Manchester United eftir pirring síðustu vikna. Líklega hefur þó enginn þeirra farið fram á þær breytingar sem urðu á liðinu fyrir þennan leik. Phil Jones kom inn í byrjunarliðið og spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United síðan 2. janúar, Michael Carrick kom inn á miðjuna, Fellaini og Rooney komu aftur inn í liðið og Zlatan var á sínum stað frammi. Mkhitaryan var ekki einu sinni í hópnum. Byrjunarliðið var svona og stuðningsmenn United áttu erfitt með að leyna undrun sinni á valinu. Lesa meira

Efnisorð: Swansea City 27
Enska úrvalsdeildin

Manchester United heimsækir Wales

Halldór Marteins skrifaði þann 5. nóvember, 2016 | 4 ummæli

Eftir ansi strembna törn í október byrjaði nóvember á heimsókn út fyrir England þar sem Manchester United var afskaplega ósannfærandi og tapaði sanngjarnt. Bæði fjölmiðlar og notendur samfélagsmiðla kepptust við að deila því að Manchester United kann ekki vel við að yfirgefa England þessa dagana. Útileikir í öðrum löndum eru oftast ströggl. Í Evrópukeppnum hefur United ekki unnið útileik í alvöru Evrópukeppni síðan í nóvember 2013. Við erum að tala um 9 leiki í Evrópudeildinni og Meistaradeild Evrópu síðan þá, á útivelli, án sigurs. Fyrir utan reyndar 4-0 sigurinn á Club Brugge í Belgíu í ágúst 2015. En það var auðvitað bara umspilsleikur. Lesa meira

Efnisorð: Gylfi Þór Sigurðsson Swansea City Upphitun 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Interim pages omitted …
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress